Truflaður trúboði og dýraníðingur til höfuðs Obama Atli Steinn Guðmundsson skrifar 29. október 2008 07:19 Mannvitsbrekkurnar Daniel Coward og Paul Schlesselman. Coward vann ötult trúboðastarf í Bells í Tennessee áður en hann gerðist nýnasisti og foreldrar Schlesselmans óttuðust um öryggi dýra nálægt honum. MYND/AFP/Getty Images
Ungu öfgamennirnir sem ráðgerðu að skjóta Barack Obama til bana klæddir hvítum kjólfötum með pípuhatta í stíl reyndust vera tilfinningalega truflaðir einfarar sem kynntust á Netinu. Þeir félagar Daniel Coward og Paul Schlesselman sem lýstu því á svo litríkan hátt fyrir bandarískum alríkisdómara hvernig þeir hygðust myrða á annað hundrað manns og Barack Obama í lokin reyndust vera truflaðir vandræðaunglingar frá Tennessee og Arkansas sem samferðarmenn lýsa sem skaðlausum furðufuglum. Til dæmis leyfðu foreldrar Schlesselmans honum ekki að þiggja að gjöf eðlu sem fjölskylduvinur hugðist gefa honum sem gæludýr þar sem drengurinn myndi að öllum líkindum skaða dýrið. Coward félagi hans komst í fréttirnar í heimabæ sínum, Bells, fyrir sprengjuhótun í gagnfræðaskóla sínum sem reyndist innihaldslaus. Byssur og bænahald er helsta áhugamál íbúa í Bells en þar býr ákaflega kirkjurækið fólk sem stundar skotveiði af krafti. Daniel Coward var þó aldrei sagður hafa fundið sig í veiðimennskunni en hins vegar hafi hann rækt tíðir af þeim mun meiri ákefð og varla farið út úr kirkjunni. Meðal annars lagði hann stund á trúboðastarf áður en hann vendaði sínu kvæði í kross og gerðist nýnasisti en honum þótti sjónarmiðum þess hóps ekki gert nægilega hátt undir höfði í Bells. Amma Cowards sagði hann vera góðan dreng sem henni þætti ekki líklegur til að myrða Barack Obama.
Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Erlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Fleiri fréttir „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sjá meira