Ríkið sýknað af bótakröfu vegna frelsisskerðingar 16. október 2008 20:48 Hæstiréttur Íslands.
Hæstiréttur sýknaði í dag íslenska ríkið af skaðabótakröfu manns sem var handtekinn við komuna til Íslands í mars 2005. Hafði maðurinn verið handtekinn þegar hann kom með Norrænu til Seyðisfjarðar þar sem nafn hans hafði komið fram í Schengen- upplýsingakerfinu yfir eftirlýsta menn. Manninum var gefið að sök fíkniefnalagabrot í félagi við aðra menn í Þýskalandi og var hann eftirlýstur af þarlendum yfirvöldum. í kjölfar handtökunnar var maðurinn úrskurðaður í farbann og síðar framseldur þýskum yfirvöldum þar sem hann sat í gæsluvarðhaldi þar til sýknudómur var kveðinn upp í máli hans. Maðurinn taldi að á sér hefði verið brotið og krafðist tæpra tveggja milljóna króna í bætur auk vaxta. Í niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur kom fram að öll lögmæt skilyrði hefðu verið fyrir hendi til að maðurinn sætti umræddum þvingunaraðgerðum og að nægilegt tilefni hefði verið til að beita þeim. Þá var talið að meðferð málsins hefði ekki tekið of langan tíma innan stjórnsýslunnar. Ekki var heldur talið að þvingunaraðgerðir sem hann sætti á farbannstímanum, en honum var gert að mæta tvisvar á dag á lögreglustöðina, hefðu brotið gegn meðalhófsreglunni við meðferð málsins. Þá var jafnframt hafnað kröfu mannsins um greiðslu miskabóta úr hendi íslenska ríkisins þar sem ekki var talið að í umræddum aðgerðum hefðu falist ólögmæt meingerð gegn frelsi eða friði hans.
Mest lesið Ísland leggur til fólk á rússnesku landamærin Innlent Ók líklega á yfir 120 rétt fyrir slysið Erlent Er Trump að gefast upp á Pútín? Erlent Öllu flugi til og frá næststærstu borg Frakklands aflýst Erlent Fluttur á bráðamóttöku með áverka á höfði eftir líkamsárás Innlent „Kannski var þetta prakkarastrik“ Innlent Segir stjórnina ekki standa við stóru orðin í orkumálum Innlent 109 látnir og yfir 160 saknað Erlent „Þú ert mögulega búin að nota gagnaver 400 sinnum síðan í morgun“ Innlent Stór meirihluti þjóðarinnar hlynntur veiðigjaldafrumvarpinu Innlent Fleiri fréttir Stór meirihluti þjóðarinnar hlynntur veiðigjaldafrumvarpinu „Þú ert mögulega búin að nota gagnaver 400 sinnum síðan í morgun“ Kjarnorkukafbátur í höfn í fyrsta sinn Kjarnorkukafbátur í höfn í fyrsta sinn Ísland leggur til fólk á rússnesku landamærin Fluttur á bráðamóttöku með áverka á höfði eftir líkamsárás Segir stjórnina ekki standa við stóru orðin í orkumálum „Kannski var þetta prakkarastrik“ „Íslandsmet í óvandaðri lagasetningu“ Skýrt að fleiri hafi brotið af sér í máli fötluðu konunnar Engar skýringar frá saksóknara, Íslandsmet í umræðum og óvæntur hvalur Íslandsmet slegið í málþófi Ekið á sjö ára barn í Borgartúni Gufunesmálið: Hringdu um miðja nótt og sögðu hinn látna vera kynferðisafbrotamann Skorið á bönd palestínska og úkraínska fánans Konan er komin í leitirnar Keyptu ónýtt hús og fá ekki áheyrn Rúmlega 200 ökumenn sektaðir og átta sviptir vegna hraðaksturs Eldri borgarar skemmtu sér í múmínkastalanum Menn á sextugs- og sjötugsaldri grunaðir um stórfellt fíkniefnabrot Nýjasta útspil Ísraela á Gasa minni á „lokalausn“ nasistanna Handviss um að Sjálfstæðisflokkurinn fái yfir þrjátíu prósent Kolfelldu tillögu minnihlutans: „Það er meirihlutinn sem stýrir dagskránni“ „Þetta virðast vera einu gjöldin sem ekki má snerta“ Skráningargjöld, fylgistap og gettó á Gasa Bæjarráð Voga vill gera ráð fyrir flugvelli í Hvassahrauni Leggur til þjóðaratkvæðagreiðslu um bókun 35 Piltur reyndi að stöðva árás föður sem ógnaði móðurinni með hníf Flugvél Play lenti í hagléli og þurfti að snúa við Lögreglumaður á sjúkrahúsi eftir alvarlega árás á Goslokahátíð Sjá meira