Verkalýðsforysta reynir að lágmarka skaðann 14. október 2008 12:50
Þúsundir Íslendinga hafa misst vinnuna það sem af er árinu en óttast er að það sé einungis lognið á undan storminum. Verkalýðsforystan berst í bökkum við að lágmarka skaðann og þrýstir á stjórnvöld að halda atvinnulífinu gangandi. Verkalýðsforystan reynir nú að þrýsta á um að skaði lífeyrissjóðanna verði lágmarkaður sem og eigenda sparifjár, sem talið var trú um að sjóðir bankanna væru vel tryggðir, og ekki síst að hér verði áfram atvinnulíf. Um 1500 manns hefur verið sagt upp störfum með hópuppsögnum það sem af er árinu. Þessi tala segir ekki alla söguna því ætla má að svipuðum fjölda hafi verið sagt upp í smærri fyrirtækjum. Þær uppsagnir rata ekki í fjölmiðla nema í mýflugumynd. Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ telur að nokkur þúsund manna séu án atvinnu og framhaldið virðist ekki gæfulegt. „Hins vegar er það þannig að ef okkur tekst ekki að halda atvinnulífinu gangandi, sem er gríðarlega mikilvægt, þá er klárt mál að æði mörg fyrirtæki verða gjaldþrota og þá er ekki spurning um einhverja mánuði í uppsagnarfrest, þá er fólk atvinnulaust á stundinni," segir Grétar. Á næstu dögum kemur í ljós hvernig verkalýðshreyfingin í samvinnu við Vinnumálastofnun og félagsmálaráðuneytið ætlar að lágmarka skaðann og styðja við fólk þegar og ef holskefla gjaldþrota og uppsagna gengur yfir. „Þó það yrði ekkert meira atvinnuleysi en maður sér fyrir núna þá er auðvitað mikil þörf á að reyna að styðja félaga sína og svo sem allan almenning því það voru sett neyðarlög fyrir rúmri viku og neyðarlög eru ekki sett nema það sé neyðarástand," segir Grétar.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira