Segist ekki hafa svikið Kristin 1. október 2008 12:39
Guðjón A. Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, segist ekki hafa gengið á bak orða sinna þegar hann lagði það til á þingflokksfundi á mánudaginn að Jón Magnússon yrði þingflokksformaður í stað Kristins H. Gunnarssonar. Ég hef ekki svikið einn né neinn segir Guðjón. Fyrir fundinn á mánudaginn hafði miðstjórn Frjálslynda flokksins skorað á Guðjón að gera Jón Magnússon að þingflokksformanni í stað Kristins H. Gunnarssonar. Í samtali við Bæjarins besta fyrr í þessum mánuði útilokaði Guðjón ekki breytingar en taldi greinilegt að einhverjir í miðstjórn flokksins væru að leggja Kristin í einelti. Á fundinum var Jón hins vegar kjörinn þingflokksformaður að tillögu Guðjóns. Aðspurður hvort hann sé ekki að taka undir það einelti sem hann hafi áður sagt að Kristinn hafi sætt segir Guðjón Arnar: „Nei, við ákváðum bara að skipta um formennsku þingflokksins og Kristinn var formaður og verður varaformaður. Jón Magnússon var varaformaður og verður formaður." Kristinn er ósáttur við þessa niðurstöðu og í samtali við fréttastofu í gær sagði hann að með þessu hefði formaðurinn keypt sér frið fyrir herferð Jóns og félaga úr Nýju afli. Formaðurinn hefði jafnframt gengið á bak orða sinna með þessum gjörningi. Guðjón neitar því að hafa svikið nokkurn mann. „Ég bara met ástandið eins og það er í flokknum og fer yfir það hvað er okkur fyrir bestu og tek ákvarðanir í samræmi við það," segir Guðjón. Þá segir Guðjón aðspurður að ekki sé verið að bola Kristni úr embætti. „Þetta er lýðræðislegur flokkur. Þá er bara um það að ræða að það er kosning og bara meirihlutinn sem ræður," segir formaðurinn enn fremur.
Mest lesið Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Innlent Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Innlent Siggi stormur sár en dregur ekki í land Innlent Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Innlent Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Innlent Tveir lagðir við gangstéttina Innlent Miðaði byssu á annan mann Innlent Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Innlent Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Innlent Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Erlent Fleiri fréttir Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Einn þeirra handteknu sautján ára Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Efnahags- og Evrópumál, hvalveiðar og laxeldi á landi á Sprengisandi Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Sjá meira