Innlent

Öryrkjar krefjast hærri bóta

Halldór Sævar Guðbergsson, formaður Öryrkjabandalags Íslands.
Halldór Sævar Guðbergsson, formaður Öryrkjabandalags Íslands.

Slæmt efnahagsástand þjóðarinnar hefur haft alvarlegar fjárhagslegar afleiðingar fyrir fjölda öryrkja, sjúklinga og ellilífeyrisþega. Þetta segir í ályktun aðalfundar Öryrkjabandalags Íslands. Þar segir jafnframt að sú staðreynd að einstaklingar hafi 130 þúsund krónur á mánuði eftir skatta og hjónafólk hafi 116 þúsund krónur hvort eftir skatta til framfærslu sé engan veginn ásættanlegt. Aðalfundur ÖBÍ skorar á stjórnvöld að grípa til aðgerða með markvissum hætti og hækka bætur almannatrygginga til að fólk geti lifað mannsæmandi lífi.

Þá segir ÖBÍ að nýtt örorkumatskerfi, sem ríkisstjórnin hyggist taka upp um næstu áramót, sé óraunhæft. Hvetur bandalagið stjórnvöld til að endurskoða fyrri ákvörðun sína í ljósi þess hversu vinnan er skammt á veg komin. Svo umfangsmikil kerfisbreyting krefjist lengri undirbúnings þannig að almenn sátt ríki um hana.

Þá fagnar ÖBÍ nefndarvinnu til einföldunar almannatryggingakerfisins sem nú er í fullum gangi og gert er ráð fyrir að ljúki 1. Nóvember. ÖBÍ segir að draga þurfi verulega úr tekjuskerðingum. Víxlverkunum á milli almannatrygginga og lífeyrissjóðakerfisins á skerðingu lífeyrisgreiðslna til öryrkja verði að linna.

Loks fagnar ÖBÍ nýjum hugmyndum nefndar sem unnið hefur að breytingum á greiðsluþátttöku almennings í heilbrigðiskerfinu þannig að landsmenn borgi aldrei meira en ákveðna upphæð á ári fyrir lyf og heilbrigðisþjónustu. ÖBÍ leggur þó mikla áherslu á að þeir öryrkjar og ellilífeyrisþegar sem minnsta framfærslu hafa borgi lægra gjald en aðrir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×