Sakar stjórnvöld og banka um leikbrögð 6. október 2008 11:25 Skúli Thoroddsen. MYND/Hari
Framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins sakar ríkisstjórnina, Seðlabankann og banka landsins um leikbrögð um helgina og að vaxtaokri og tangarhaldi á íslenskum almenningi verði viðhaldið.Á heimasíðu Starfsgreinasambandsins ritar Skúli Thoroddssen, framkvæmdastjóri sambandsins, grein um atburði helgarinnar. Þar kemur fram að formannafundur SGS hafi í gær lýst yfir stuðningi við forystu ASÍ í viðræðum hennar við Samtök atvinnulífsins og ríkisvaldsins um það alvarlega ástand sem ríki í fjármálageiranum. ASÍ og SA hafi lagt fram sameiginlega kröfu um agaða hagstjórn og skýr skilaboð um breytta peningamálastefnu þar sem aðildarumsókn að ESB og upptöku evru var ofarlega á lista. „Það kom heldur ekki til álita að lífeyrissjóðirnir flyttu 200 milljarða af eignum sjóðanna heim í þeim tilgangi að styrkja gjaldeyrisforðann nema bankarnir losuðu um eitthvað af erlendum eignum sínum líka," segir Skúli.Þá vísar hann til þess að Geir H. Haarde hafi skyndilega um miðnætti í gær lýst því yfir að ekki væri lengur þörf á aðgerðapakka heldur myndu bankarnir selja eignir í útlöndum. Skúli segir forsætisráðherra aldrei hafa viljað upplýsa um hve mikill vandin væri að öðru leyti en hann væri ógurlegur. Hann hefði reynst vera heimabakaður af bönkunum eins og Þorvaldur Gylfason hefði upplýst í Silfri Egils í gær.„Sú alvarlega spurning hlýtur þó að sitja eftir; um hvað snérist málið? Svar: Leikbrögð. Leikbrögð Kaupþings og Landsbanka sem í gær kl. 17:00, náðu samkomulagi um hugmyndir um hvernig bankarnir tveir gætu unnið saman að því tryggja stöðugleika í fjármálalífinu í samvinnu við ríkisstjórn og Seðlabanka, án samráðs við aðila vinnumarkaðarins.Svo virðist sem þessir aðilar hafi ekki hag af agaðri peningamálastefnu. Menn þurfa að geta leikið sér frítt, það þarf að vera unnt að viðhalda vaxtaokrinu, Davíð í Seðlabankanum og tangarhaldi á íslenskum almenningi.Meðan á þessum leikbrögðum stóð var bankamálaráðherrann í símanum við útlönd. Það reyndist óþarfi," segir Skúli enn fremur.
Mest lesið Vaktin: Tillagan samþykkt og annarri umræðu um veiðigjöld lokið Innlent Vændiskaupendur séu oftast fjölskyldufeður á leið til vinnu eða fundar Innlent „Hann er að eigna sér eitthvað sem hann á ekki“ Innlent Fordæmalaus ákvörðun sem gæti breytt Alþingi til framtíðar Innlent Lögregla rannsakar alvarlegt slys í Lágafellslaug Innlent Hóta að loka svæðinu við Seljalandsfoss Innlent Velti bílnum við Fjarðarhraun Innlent Indversk tenniskona skotin til bana af föður sínum við morgunverðarborðið Erlent Lögregla rannsakar slys í sundlauginni í Stykkishólmi Innlent Krefjast bóta verði ekki fallið frá áformum um skólaþorp Innlent Fleiri fréttir Opinberar gamalt ástarsamband við táningsstúlku „Liggur alveg ljóst fyrir að þetta frumvarp er drasl“ Forstöðumaður spilar og syngur fyrir gesti Sundlaugar Akureyrar Sögulegur dagur á Alþingi og vændi í Airbnb-íbúðum Árekstur bíls og vespu á Hafnarfjarðarvegi Sögulegur dagur á Alþingi: Lýðræðisákvæði eða kjarnorkusprengja? Varðskipið Þór heldur heim frá Noregi í næstu viku Frumvarpið komið yfir erfiðasta hjallann en gæti átt nóg eftir Einn handtekinn í mansalsrannsókn lögreglunnar Vændiskaupendur séu oftast fjölskyldufeður á leið til vinnu eða fundar Lögregla rannsakar slys í sundlauginni í Stykkishólmi Kristrún fái ef til vill að bragða á eigin meðali fyrr en síðar Hóta að loka svæðinu við Seljalandsfoss „Hann er að eigna sér eitthvað sem hann á ekki“ „Hræðilegar fréttir fyrir lýðræðið á Íslandi“ Fordæmalaus ákvörðun sem gæti breytt Alþingi til framtíðar Dramatík á Alþingi og bílastæðablús hjá World Class Velti bílnum við Fjarðarhraun Flytja hluta starfsemi SAk vegna myglu Sjá ekki fyrir endann á umfangsmikilli rannsókn á fíkniefnaframleiðslu „Þetta er alvarlegur áfellisdómur yfir forsætisráðherra“ Vaktin: Tillagan samþykkt og annarri umræðu um veiðigjöld lokið Fundu 36 hugsanlega þolendur mansals á Íslandi í alþjóðlegri lögregluaðgerð „Eftir þetta hvassviðri í þinginu í gær heldur lífið áfram“ Tekjur af laxveiði í Borgarfirði eru vel yfir 50% af tekjum landbúnaðar á svæðinu Krefjast bóta verði ekki fallið frá áformum um skólaþorp Halda áfram að ræða veiðigjöldin Tekur önnur Íslendinga þátt í erfiðustu og lengstu kappreið í heimi Draga Dettifoss til Reykjavíkur Sleginn í andlitið með hnúajárni Sjá meira