Geir hefur ekki séð skýrslu breskra sérfræðinga um bankakerfið 15. október 2008 17:34
Geir H. Haarde forsætisráðherra segir skýrslu breskra sérfræðinga, sem unnin var fyrir Landsbankan fyrr á þessu ári, ekki hafi verið lagða fyrir ríkisstjórn. Hann hafi vitað af skýrslunni en ekki lesið hana. Þetta kom fram í svari hans við fyrirspurn á blaðamannafundi í Iðnó í dag. Fram hefur komið í fréttum að í umræddri skýrslu hafi verið bent á hættuna sem fylgdi íslenska bankakerfinu. Geir sagði margar skýrslur hafa verið unnar um íslenskt efnahagslíf og menn hafi flestir vitað að það væri hættumerki hér á landi vegna stærðar bankakerfisins. Menn hefðu talið að bankarnir hefðu svigrúm til að komast í gegnum erfiðleikana alveg fram til 15. september þegar Lehman Brothers bankinn hrundi. Enn fremur hefði verið lagt til fyrr á árinu að bankarnir minnkuðu stærð sína en þeim hefði ekki unnist tími til þess. Geir var einnig spurður um það hvort trúnarðarbrestur hefði komið upp á milli hans og Tryggva Þórs Herbertssonar, efnahagsráðgafa ríkisstjórnarinnar, sem hætti í dag en Geir sagði engan trúnarðarbrest hafa orðið. Þetta hefði verið gert í mesta vinskap og honum hefði ekki verið vikið úr starfi. Aðspurður um fregnir af því að hundruð milljóna væru týndar í kerfinu sagði Geir að hnökrar væru í kerfinu og þeir hefðu varað lengur en búist hefði verið við. Allir sem gætu væru að vinna að málinu, meðal annars sérfræðingur hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Ekki á að leita að blórabögglum Um þau ummæli Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur utanríkisráðherra um að seðlabankastjórn ætti að víkja sagði Geir að hann teldi að það ætti ekki að persónugera viðfangsefnin í bankastjórn Seðlabankans. Við ættum í gríðarlegum erfiðleikum og ættum að vinna saman en ekki leita að blórabögglum. Eftir að hafa svarað spurningum hélt Geir á landsleik Íslendinga og Makedóna á Laugardalsvelli sem hefst klukkan 18.
Mest lesið Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Innlent Viðræður við Íran hefjist á morgun Erlent Miðaði byssu á annan mann Innlent Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Innlent Tveir lagðir við gangstéttina Innlent Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Erlent Siggi stormur sár en dregur ekki í land Innlent „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Innlent Knapi datt af baki Innlent Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Innlent Fleiri fréttir Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Efnahags- og Evrópumál, hvalveiðar og laxeldi á landi á Sprengisandi Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Sumarhús við Þingvallavatn eyðilagðist í eldsvoða Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Hvorki tilkynnt um kynferðisbrot né líkamsárás fyrstu nóttina Líður eins og Gísli á Uppsölum sé kominn heim Slasaðist á fæti uppi á hálendi Veðrið „eins og eftir pöntun“ Guðmundur Felix kominn með krabbamein Sjá meira