Geir á öndverðum meiði við sérfræðinga 10. október 2008 12:58
Skoðanir Geirs Haarde forsætisráðherra á því hvaða skref þurfi að taka til að bjarga því sem bjargað verður ganga þvert á það sem sérfræðingar í efnahags- og atvinnumálum halda fram. Þegar efnahagslíf Íslendinga er í frjálsu falli gerast þær raddir æ háværari að það eina í stöðunni sé aðstoð frá Alþjóða gjaldeyrissjóðinum. Halldór Ásgrímsson, fyrrverandi forsætisráðherra, lét þau orð falla í samtali við fréttastofu nú rétt fyrir hádegi. Yfirmaður greiningardeildar Danske Bank sagði það sama í fréttum okkar í gær og framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins tók í sama streng í fréttum Ríksissjónvarpsins. Fulltrúar frá sjóðnum hafa haldið til í Seðlabankanum alla þessa viku og fundað með forsætisráðherra. Það er ekki vísbending um að Íslendingar munu leita liðsinni sjóðsins ef marka má orð forsætisráðherra í viðtali við fréttamann Stöðvar 2 í gær. Þar sagði Geir að fulltrúar sjóðsins kæmu hér reglulega og oft ættu sér stað hreinskiptnar viðræður við þá. Sjóðurinn geti hugsanlega veitt lán sem sé bundið ákveðnum skilyrðum sem hann ákveði að setja. Íslensk stjórnvöld hafi hins vegar ekki tekið ákvörðun um að fara þá leið. Stjórnvöld þeirra landa þar sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur þurft að grípa inn í hafa í raun orðið valdalaus. Fulltrúar sjóðsins taka við. Að þeir stígi inn með þeim hætti á Vesturlöndum á sér ekkert fordæmi og þau skilyrði sem hér yrðu sett liggja ekki fyrir. „Hins vegar eru okkar aðstæður núna frábrugðnar því sem þeir ahaf oftast verið að glíma við annars staðar," segir Geir og ítrekar að stjórnvöld hafi ekki ákveðið að leita til sjóðsins. Hagfræðingar eru sammála um að Seðlabanki Íslands sé rúinn traustri og skipta eigi um yfirstjórn bankans. Sami tónn hefur heyrst úr herbúðum Samfylkingarinnar eftir að varaformaður flokksins lét þau orð falla á fréttavefnum Vísi í gærmorgun. Spurður hvort stjórn Seðlabankans njóti trausts segir Geir: „Að sjálfsögðu."
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira