Töldu fullvíst að Kjartan væri að tala um Davíð 12. október 2008 12:14
Yfirlýsing Kjartans Gunnarssonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins, um að hann hafi í ræðu sinni á flokksráðsfundi í gær ekki gagnrýnt Davíð Oddsson kom fundargestum á óvart. Þeir töldu fullvíst að hann væri að tala um Davíð þegar hann frábað sér að vera kallaður óreiðumaður. Við sögðum frá því í fréttum okkar í gær að dramatísk uppákoma hafi orðið á flokksráðsfundi Sjálfstæðisflokksins í gær þegar Kjartan Gunnarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri flokksins, stóð upp og frábað sér að vera kallaður óreiðumaður. Kjartan stóð upp eftir fundinum var lokað fyrir fjölmiðlum. Heimildarmenn fréttastofu sem sátu fundinn töldu víst að að Kjartan væri með orðum sínum að vísa í ummæli Davíðs Oddssonar seðlabankastjóra í Kastljósinu síðasta þriðjudag. Þar kallaði Davíð forsvarsmenn bankanna óreiðumenn en Kjartan sat í bankaráði Landsbankans þar til bankinn var þjóðnýttur í síðustu viku. Fréttablaðið og fréttavefir Morgunblaðsins og DV sögðu einnig frá málinu í gær og túlkuðu heimildarmenn þeirra einnig orð Kjartans sem gagnrýni á Davíð. Í frétt Morgunblaðsins segir að þó Kjartan hafi ekki nefnt Davíð á nafn hafi fáum dulist hvert ummælunum var beint. Kjartan hafði samband við fréttastofu í gær eftir að fréttin var birt og sagðist með orðum sínum ekki hafa átt við Davíð og lýsti yfir fullum stuðningi við hann. Hann kom þessari sömu athugasemd á framfæri við fréttavefi Morgunblaðsins og DV. Heimildarmönnum fréttastofu sem sátu fundinn kemur yfirlýsing Kjartans á óvart. Þeir voru vissir um að Kjartan hefði átt við Davíð enda ekki vitað til þess að aðrir en hann hafi kallað forsvarsmenn bankanna óreiðumenn í umræðunni síðustu daga.
Mest lesið Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Innlent Viðræður við Íran hefjist á morgun Erlent Miðaði byssu á annan mann Innlent Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Innlent Tveir lagðir við gangstéttina Innlent Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Erlent Siggi stormur sár en dregur ekki í land Innlent „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Innlent Knapi datt af baki Innlent Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Innlent Fleiri fréttir Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Efnahags- og Evrópumál, hvalveiðar og laxeldi á landi á Sprengisandi Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Sumarhús við Þingvallavatn eyðilagðist í eldsvoða Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Hvorki tilkynnt um kynferðisbrot né líkamsárás fyrstu nóttina Líður eins og Gísli á Uppsölum sé kominn heim Slasaðist á fæti uppi á hálendi Veðrið „eins og eftir pöntun“ Guðmundur Felix kominn með krabbamein Sjá meira