Innlent

Eignir Landsbankans standi undir Icesave-skuldbindingum

Frá fundi Geirs H. Haarde og Gordons Brown fyrr á árinu.
Frá fundi Geirs H. Haarde og Gordons Brown fyrr á árinu. MYND/Stöð 2

Ríkisstjórn Íslands metur mikils að bresk stjórnvöld hyggjast tryggja að eigendur Icesave-reikninga Landsbankans í Bretlandi muni ekki tapa peningum á viðskiptum við Icesave.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu. Þar segir að ríkisstjórnir landanna meti nú stöðuna og leiti að viðunandi lausn fyrir alla aðila. Bent er á að með breytingu á lögum um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta séu innstæður gerðar að forgangskröfum ef komi til skiptameðferðar.

Góðar líkur séu á að eignir Landsbankans muni standa undir stærstum hluta innstæðna á Icesave-reikningum Landsbankans í Bretlandi. „Ríkisstjórnin ítrekar að ríkissjóður mun styðja Tryggingarsjóð innstæðueigenda og fjárfesta við öflun nægjanlegs fjár. Ríkisstjórn Íslands er staðráðin í að láta ekki núverandi stöðu á fjármálamörkuðum skyggja á áralanga vináttu Íslands og Bretlands," segir einnig í tilkynningu.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×