Skilyrði að bankar færi líka eignir heim 5. október 2008 08:12 Forsvarsmenn lífeyrissjóðanna koma á fund stjórnvalda í gær.
Lífeyrissjóðirnir setja það skilyrði fyrir því að flytja hluta eigna sinna til landsins að fjármálastofnanir geri slíkt hið sama. Gjaldeyrisforði þjóðarbúsins og gengi krónunnar myndu styrkjast. Þess krafist að peningarnir verði tryggðir."Að þessum björgunarleiðangri verða allir að koma; stjórnvöld, Seðlabankinn, viðskiptabankarnir, fjárfestingarfélög og aðilar vinnumarkaðarins. Öðruvísi er þetta ekki framkvæmanlegt," sagði Arnar Sigurmundsson, formaður stjórnar Landssamtaka lífeyrissjóða, eftir fund með fjórum ráðherrum í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu á sjöunda tímanum í gærkvöld. Á þeim fundi svöruðu lífeyrissjóðirnir erindi stjórnvalda um að þeir selji hluta eigna sinna í útlöndum og flytji heim. Við það styrkist gjaldeyrisforði þjóðarbúsins og gengi krónunnar þar með.Af 1.800 milljarða heildareignum lífeyrissjóðanna eru 500 milljarðar ávaxtaðir í útlöndum. Hluti þeirrar fjárhæðar er bundinn til lengri tíma en annað ekki. "Það er ekki verið að tala um nálægt því allar þessar eignir en stóran hluta," segir Arnar sem vill að öðru leyti ekki upplýsa um hve háar fjárhæðir er ræða.Ekki er ljóst hve langan tíma tekur að losa um eignir í útlöndum, né hvort, og þá hvaða, lagabreytinga er þörf.Landssamtök lífeyrissjóða hófu þegar á þriðjudag athugun á möguleika þess að færa hluta eigna sinna heim. Eftir að formlegt erindi stjórnvalda þar um hafði komið fram var í gær haldinn fundur fulltrúa nánast allra lífeyrissjóða landsins, 30 að tölu, og afstaða mótuð."Það er grundvallaratriði að fjármálastofnanir og bankar flytji hluta eigna sinna heim að því marki sem mögulegt er. Annað er fráleitt," sagði Ögmundur Jónasson, formaður BSRB og varaformaður stærsta lífeyrissjóðsins; Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins. Ögmundur segir niðurstöðu verða að fást í dag og kallar eftir eignasölu. "Mín skoðun er að bönkum og fjármálastofnunum beri að huga að eignasölu til að hjálpa til við að leysa okkur niður úr þeirri snöru sem þjóðin hangir í núna."Ögmundur segir það kröfu lífeyrissjóðanna að það fjármagn sem þeir færi til landsins, ef til þess kemur, muni gagnast ríkissjóði beint. "Við erum ekki að setja lífeyrissjóðspeninga á almennt spil. Það verður að vera rækilega skilgreint í hvað þeir peningar yrðu notaðir þannig að þeir verði fullkomlega tryggðir."
Mest lesið Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Innlent Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Innlent Vill breyta lögum um .is Innlent Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Innlent Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Erlent Enn eitt innbrotið í miðbænum Innlent Lýsa yfir neyðarástandi í Washington vegna gróðurelda Erlent Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Innlent Von der Leyen kallar eftir átaki um öruggari landamæri Erlent Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Erlent Fleiri fréttir Vill breyta lögum um .is Enn eitt innbrotið í miðbænum Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Einn þeirra handteknu sautján ára Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Efnahags- og Evrópumál, hvalveiðar og laxeldi á landi á Sprengisandi Sjá meira