Ólafur gerði Davíð orðlausan 20. nóvember 2008 13:09 Ólafur Ragnar Grímsson og Davíð Oddsson á góðri stundu.
Ólafur Ragnar Grímsson lýsir tuttugu sekúndna löngu símtali sínu við Davíð Oddsson þar sem hann tilkynnti honum um að hann ætlaði að beita málskotsrétti sínum og synja fjölmiðlalögunum. Ástæðu þess að símtalið stóð yfir í svo stuttan tíma segir Ólafur hafa verið þögn Davíðs, hann hafi verið svo gáttaður að hann kom ekki upp orði. Þetta kemur fram í nýútkominni bók Guðjóns Friðrikssonar, Saga af forseta. Aðdragandanum að þessari umdeildu ákvörðun Ólafs er lýst nokkuð nákvæmlega í bókinni. Fjölmiðlalögin komu inn á Bessastaðastofu ásamt nokkrum öðrum lögum sem þurfti að skrifa undir. Þá hafi Ólafur skrifaði undir allt, nema fjölmiðlalögin. „Eftir að ég var búinn að fá frumvarpið í hendur settist ég við það að semja yfirlýsingu en var búinn að hugsa hana aðeins áður. Ég lá töluvert yfir henni þó ég væri tiltölulega fljótur að skrifa hana og á öll handritin að henni. Ég skrifaði hana algerlega einn en lét svo Stefán L. Stefánsson forsetaritara og Örnólf Thorsson skrifstofustjóra fara yfir hana. Þá fyrst áttuðu þeir sig á því hvað ég ætlaði að gera." Ólafur segir síðan að klukkutíma áður en hann tilkynnti þjóðinni ákvörðun sína á blaðamannafundi hafi hann hringt í Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson. „Samtalið við Davíð var eins og hann sagði sjálfur opinberlega 20 sekúndur eða hvað það nú var. Og afhverju var það? Það var af því að þegar ég sagði honum að ég hefði tekið ákvörðun um að staðfesta ekki lögin, þá var bara þögn á hinum endanum. Hann hafði verið svo sannfærður um að ég skrifaði undir að hann kom ekki upp orði," segir Ólafur í bókinni. Hann segir að Halldór hafi hinsvegar ávallt talið líklegt að hann skrifaði ekki undir og því var samtal þeirra nokkuð lengra, þar sem farið var yfir málið.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira