Vakthafandi Læknir býr á Stökustað og stal Ópinu eftir Munch Steinþór Helgi Arnsteinsson skrifar 20. júní 2008 16:20 „Vakthafandi læknir í góðra vina hópi, líklega staddur á Mont-Ras. Þetta er eina myndin sem vitað er til að hafa náðst af Vakthafandi Lækni," segir á vef Vísindavefsins.
Vísindavefurinn birtir eftirfarandi fróðleik í dag: „Það sem við teljum okkur vita um Vakthafandi Lækni er að hann á heima á Stökustað sem oft er minnst á í veðurfréttum. Hann æpir stundum, enda fullyrða norskir lögreglumenn að hann hafi stolið Ópinu eftir norska spaugarann Munch, en um hann höfum við fjallað í löngu máli áður á Vísindavefnum." Svarið er við spurningunni Hver er þessi Vakthafandi Læknir sem alltaf er talað við og vitnað í þegar fjölmiðlamenn segja fréttir af slösuðu eða veiku fólki? Segir jafnframt í svari Vísindavefsins að Vakthafandi læknir drekki eingöngu vígt vatn, éti mörgæsir, söngli Bimbi rimbi rimm bamm þegar hann er ekki á spjalli við fjölmiðlamenn og sé eini maðurinn sem hafi reiknað út hornasummu einhyrnings með eingöngu frumtölum. Að lokum segir Vísindavefurinn í svari sínu: „Við ráðleggum [sic] öllum þeim sem vilja hitta Vakthafandi Lækni að halda í vestur og komast þannig fyrir austan sól og sunnan mána. Ef menn nenna því ekki þá geta þeir bara reynt að troða sér um tær og setið einhvers staðar annars staðar en á rassinum." Fyrir neðan er reyndar bent á svarið sé markleysa enda sé það föstudagssvar og „taki einhver þetta svar alvarlega er það alfarið á þeirra ábyrgð." „Tilgangurinn með föstudagssvörunum er að vera skemmtilegur," útskýrir Jón Gunnar Þorsteinsson, aðstoðarritstjóri Vísindavefsins. Föstudagssvörin hafa tíðkast nánast frá upphafi vefsins og oftast eru þau með spaugilegra móti. Jón Gunnar kannast þó ekki við að þau hafi orðið neinum til trafala enda sé ætíð tekið fram að svörin skuli ekki taka alvarlega. Svör úr flokknum Föstudagssvör má skoða hér.
Mest lesið „Versta hljómsveit Íslandssögunnar“ segir rappara vera með sig á heilanum Menning „Ég nenni ekki að hlusta á 7. október rökstuðninginn enn og aftur“ Lífið Einhentar íslenskar vinkonur: „Eins og við hefðum þekkst alla ævi“ Lífið Fagnaði afmælinu með sínum kærustu vinkonum Lífið Abba skilar 350 milljörðum í kassann Tónlist Höfundur Kaupalkabókanna látinn Lífið Konfektleikur í tilefni 90 ára afmælis Nóa Síríus Lífið samstarf Alltaf til í flipp en nennir ekki að borða vondan mat Lífið Einn tenóranna þriggja með tónleika í Hörpu í mars Lífið Fannar og Snorri slógust þar til þeir stóðu nánast naktir eftir Lífið Fleiri fréttir Fannar og Snorri slógust þar til þeir stóðu nánast naktir eftir Höfundur Kaupalkabókanna látinn „Myndi gjarnan vilja að barnið mitt færi líka í heimsókn í mosku“ Einn tenóranna þriggja með tónleika í Hörpu í mars Alltaf til í flipp en nennir ekki að borða vondan mat „Ég nenni ekki að hlusta á 7. október rökstuðninginn enn og aftur“ Einhentar íslenskar vinkonur: „Eins og við hefðum þekkst alla ævi“ Sungu um Labubu og þriðju vaktina um jólin Fagnaði afmælinu með sínum kærustu vinkonum Rúv býður upp á hollenskt fréttastef Gummi Ben mætti með Michelin-kokk Glænýr bóksölulisti: Skólastjóri Ævars Þórs skýtur kónginum ref fyrir rass Áfall að dóttirin ætti 44 árum eldri kærasta Ómar Úlfur nýr dagskrárstjóri Bylgjunnar Sveppi gerði fyrsta ógeðsdrykkinn í tuttugu ár fyrir Bjarna Ben Dench segir Weinstein hafa mátt þola nóg Þrír Geirar skírðir í Jónshúsi Bílakarókí Bítisins: Hauspokinn gerði mikið fyrir sönginn Þessi eru tilnefnd til Golden Globe-verðlauna Gunnar Smári látinn heyra það fyrir færslu um Davíð á Sorpu Stjörnum prýtt afmæli Nínu „Ætla að verða ógeðslega fræg og ógeðslega rík” Stjörnulífið: Kim Kardashian norðursins fundin Fótboltastelpan sem endaði í kristnum háskóla í suðurríkjunum Deila fyrstu myndunum af hvort öðru „Mig hefði aldrei grunað að þetta ætti eftir að koma fyrir mig“ Skelfing greip um sig þegar björgunarbátnum hvolfdi Krakkatían: Borgari, bækur og aðfangadagur jóla Tommi Steindórs og Hrafnhildur trúlofuð Slagsmálin tengd hrósi, ekki framhjáhaldi Sjá meira