Grundvallarreglur um mannréttindi þverbrotnar 18. desember 2008 18:16
Jón Ásgeir Jóhannesson og þeir sem Ríkislögreglustjóri hefur ákært fyrir meint skattalagabrot hafa sent frá sér tilkynningu í kjölfar ákærunnar. Þar segir að hér sé enn á ferðinni gamla „Baugsmálið" sem hófst með húsleit ríkislögreglustjóra hjá Baugi í ágúst 2002. „Ákærandinn í þetta sinn er sami maðurinn og stýrði húsleitinni. Þetta er í þriðja sinn sem gefin er út ákæra í þessu sama máli. Það er gert þrátt fyrir að Hæstiréttur hafi í dómi fundið berum orðum að því við ákæruvaldið að sá tími sem leið frá upphafi rannsóknarinnar í ágúst 2002 og þar til ákæra númer tvö var gefin út í mars 2006 hafi verið allt of langur," segir í tilkynningunni. Þá segir ennfremur að svo virðist sem ákæruvaldið taki ekki mark á slíkum aðfinnslum æðsta dómstóls landsins en velji að ákæra rétt einu sinni í málinu þótt nú sé komið á sjöunda ár frá því rannsókn málsins hófst. „Þetta er gert þótt Héraðsdómur Reykjavíkur hafi í gær vísað frá dómi ákæru frá þessum sama ákæranda vegna annmarka á málsmeðferð sem enn frekar eiga við um nýjustu ákæruna," segir í tilkynningunni en þar er átt við meint skattalagabrot Jóns Ólafssonar sem vísað var frá dómi í gær. „Ákæran er gegn Baugi, Gaumi, Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, Kristínu Jóhannesdóttur og Tryggva Jónssyni. Þessir einstaklingar hafa mátt eyða drjúgum hluta síðustu sjö ára til þess að verja hendur sínar hjá ríkislögreglustjóra og fyrir íslenskum dómstólum." Í tilkynningunni segir einnig að persónuleg skattamál ákærðu sem og skattamál Baugs og Gaums sem ákært sé fyrir hafi hlotið endanlega niðurstöðu hjá skattayfirvöldum. Þess megi einnig geta að eftir niðurstöðu yfirskattanefndar í máli Jóns Ásgeirs, Tryggva og Gaums hafi þessir aðilar fengið tugi milljóna króna endurgreidda frá ríkissjóði. „Ákærðu telja að með ákærunni séu þverbrotnar á þeim grundvallarreglur um mannréttindi með því að ákæra margsinnis í sama máli og draga mál svo lengi að óafsakanlegt sé."
Tengdar fréttir Jón Ásgeir ákærður fyrir skattalagabrot Helgi Magnús Gunnarsson settur Ríkislögreglustjóri hefur gefið út ákæru á hendur Jóni Ásgeir Jóhannessyni, Baugi Group og tengdum aðilum. Ákæran snertir meint skattalagabrot. 18. desember 2008 17:30 Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Fleiri fréttir Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Sjá meira
Jón Ásgeir ákærður fyrir skattalagabrot Helgi Magnús Gunnarsson settur Ríkislögreglustjóri hefur gefið út ákæru á hendur Jóni Ásgeir Jóhannessyni, Baugi Group og tengdum aðilum. Ákæran snertir meint skattalagabrot. 18. desember 2008 17:30