Allt mælir með lagabreytingum til að auðvelda útflutning bíla 14. október 2008 11:03 MYNF/GVA
Framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins segir að allt mæli með því að lögum verði breytt á þann veg að auðveldara verði að flytja notaða bíla úr landi. Með því megi meðal annars afla aukins gjaldeyris og flýta fyrir komu umhverfisvænni bifreiða í umferðina. Geir H. Haarde forsætisráðherra sagði í fyrirspurnartíma á Alþingi í gær að hann vildi greiða fyrir því að hægt yrði að flytja úr landi bíla sem ekki yrðu notaðir í núverandi efnahagsástandi. Fram kom að breyta þyrfti lögum um vörugjald á ökutæki og lögum um virðisaukaskatt þannig að hægt væri að endurgreiða vörugjöld og skatt þegar nýlegir og notaðir bílar yrðu fluttir úr landi. Ljóst má vera að töluverð verðmæti eru fólgin í bílaflota landsmanna og því hagsmunir af því að koma þeim bílum í verð sem ekki verða notaðir. Özur Lárusson, framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins, segir menn þar á bæ hafa kallað eftir þessum breytingum nokkrum sinnum. Miðað við núverandi stöðu sé það „vonlaus bisness" að flytja bíla út aftur þar sem hátt vörugjald og skattur fáist ekki endugreidd. „Það er möguleiki á að fá peninga fyrir bíla útlöndum núna miðað við stöðu krónunnar. Við eigum samkeppnishæfa bíla sem eru minna keyrðir en bílar víða í Evrópu og við erum því með góða vöru sem hægt væri að selja þannig að það stæði undir sér," segir Özur og bendir á að vinna þurfi málið hratt vegna stöðu krónunnar. Átta þúsund notaðir bílar til sölu Özur telur aðspurður erfitt að áætla hversu mikla fjármuni mætti fá fyrir bílana en segir að um átta þúsund notaðir bílar séu nú til sölu í landinu og það mætti örugglega senda töluverðan hluta þeirra út. „Með þessu getum við fengið töluverðan gjaldeyri inn í landiið og líka komið hreyfingu á bílamarkaðinn hér á landi," segir Özur. Hann bendir á að um fimm þúsund nýir bílar séu nú á kajanum en búið sé að borga fyrir þá í evrum og dollurum en eftir eigi að borga vörugjöld. Með því að losa sig við notaða bíla megi flýta fyrir því að þessir bílar komi á markað en þeir séu betur búnir með tilliti til umhverfsins. Þannig megi flýta fyrir því markmiði að minnka losun gróðurhúsalofttegunda frá samgöngum. „Þannig að við teljum að það sé allt sem mælir með þessum breytingum," segir Özur. Özur bendir á að þessir hlutir hafi verið til skoðunar innan fjármálaráðuneytisins og hann telji að það sé fullur vilji þar til þess að breyta lögunum. „Þessar breytingar gætu drifið hluta af hagkerfinu," segir hann enn fremur.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira