Innlent

Færri umferðarslys þar sem fólk slasast

MYND/Heiða

Umferðaróhöppum þar sem slys hafa orðið á fólki hefur fækkað nokkuð á höfuðborgarsvæðinu eða um 15 prósent síðastliðna sjö mánuði samanborið við sama tíma á síðasta ári. Þetta kemur fram í tilkynningu lögreglu og vísað í gögn Umferðarstofu.

Síðastliðið eitt og hálft ár hafa flest slys orðið á gatnamótum Suðurlandsbrautar/Kringlumýrarbrautar og Laugavegar eða fjórtán talsins. Tíu slys hafa á sama tíma átt sér stað á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Bústaðavegar austan Bústaðavegsbrúar. Á sama tíma hafa orðið sex slys á gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×