Breytingum á unglingasmiðjum frestað 22. desember 2008 16:55 Þorleifur Gunnlaugsson, borgarfulltrúi VG.
Fyrirhuguðum breytingum á starfsemi unglingasmiðjanna Traðar í Keilufelli og Stígus á Amtmannstíg sem ráðgert var að tækju gildi um áramótin verður frestað verði frumvarp að fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar sem lagt var fram í dag samþykkt. Samkvæmt frumvarpinu verður starfsemi þeirra endurskoðuð en hún mun haldast óbreytt á fyrri hluta næsta árs. Á fundi velferðarsviðs Reykjavíkurborgar nýverið voru lagður til verulegur breytingar og sparnaður í unglingasmiðjum. Fulltrúar minnihlutans töldu að tillögurnar myndu leiða til þess að þeir unglingar, sem á hverjum tíma hafa haft þörf fyrir og fengið þjónustu í unglingasmiðjunum, myndu ekki fá þjónustu við hæfi. Vilja endurskoðun byggða á kjörorðunum ,,ekkert um okkur án okkar" Að mati Þorleifs Gunnlaugssonar, borgarfulltrúa Vinstri grænna, er ánægjulegt að fyrirhugaðar breytingar skuli ekki koma til framkvæmda um áramót eins og meirihluti velferðarráðs hafði ákveðið og að jafnframt verði aukið fjármagn lagt til úrræðisins. Þorleifur segir að borgarstjórnarflokkur VG voni að í þeirri endurskoðun sem fram mun fara verði haft fullt samráð við notendur, aðstandendur og starfsfólk í anda kjörorðsins ,,ekkert um okkur án okkar."
Tengdar fréttir Útsvar og fasteignaskattar ekki hækkaðir í Reykjavík Frumvarp að fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2009 var lagt fram í borgarstjórn Reykjavíkur í dag. Frumvarpið gerir ráð fyrir að álagningarhlutföll útsvars, fasteignaskatta, lóðarleigu og holræsagjalds verði ekki hækkuð. Hagrætt verður í stjórnsýslu borgarinnar og laun borgarfulltrúa og æðstu stjórnenda lækka um 10%. Afgreiðsla fjárhagsáætlunar fer fram á nýju ári. 22. desember 2008 15:45 Sparnaðartillögur hugsanlega óraunhæfar Borgarstjórnarflokkur Samfylkingarinnar telur fyllstu ástæðu vera til að hafa allan fyrirvara á raunhæfni niðurskurðartillagana Hönnu Birnu Kristjándóttur, borgarstjórara, án þess að svíkja þverpólitísk leiðarljós borgarstjórnar um að standa vörð um grunnþjónustuna og koma í veg fyrir uppsagnir og gjaldskrárhækkanir. 22. desember 2008 16:15 Vilja hærra útsvar í Reykjavík Borgarstjórnarflokkur Vinstri grænna vill dreifa álagi og hækka útsvar í Reykjavík. Hámarksútsvar hefur verið 13,03% en Alþingi samþykkti á dögunum að heimila sveitarfélögum að hækka útsvar í 13,28%. Reyjavíkurborg hefur nýtt sér hámarksútsvar undanfarin ár. 22. desember 2008 14:47 Mest lesið Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Innlent Fleiri fréttir Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásynd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Áherslur meirihlutasáttmálans: Svari ákalli um breytingar Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Þögull sem gröfin Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Alþjóðlegur sérfræðingur til liðs við Eyjagöng Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Vilja fresta ESB-atkvæðagreiðslu þar til í október Vegavinna á Reykjanesbraut vestan Straumsvíkur Segir andstæðinga viðræðna leita í handbók Farage og Reform Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Sjá meira
Útsvar og fasteignaskattar ekki hækkaðir í Reykjavík Frumvarp að fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2009 var lagt fram í borgarstjórn Reykjavíkur í dag. Frumvarpið gerir ráð fyrir að álagningarhlutföll útsvars, fasteignaskatta, lóðarleigu og holræsagjalds verði ekki hækkuð. Hagrætt verður í stjórnsýslu borgarinnar og laun borgarfulltrúa og æðstu stjórnenda lækka um 10%. Afgreiðsla fjárhagsáætlunar fer fram á nýju ári. 22. desember 2008 15:45
Sparnaðartillögur hugsanlega óraunhæfar Borgarstjórnarflokkur Samfylkingarinnar telur fyllstu ástæðu vera til að hafa allan fyrirvara á raunhæfni niðurskurðartillagana Hönnu Birnu Kristjándóttur, borgarstjórara, án þess að svíkja þverpólitísk leiðarljós borgarstjórnar um að standa vörð um grunnþjónustuna og koma í veg fyrir uppsagnir og gjaldskrárhækkanir. 22. desember 2008 16:15
Vilja hærra útsvar í Reykjavík Borgarstjórnarflokkur Vinstri grænna vill dreifa álagi og hækka útsvar í Reykjavík. Hámarksútsvar hefur verið 13,03% en Alþingi samþykkti á dögunum að heimila sveitarfélögum að hækka útsvar í 13,28%. Reyjavíkurborg hefur nýtt sér hámarksútsvar undanfarin ár. 22. desember 2008 14:47