Vilja hærra útsvar í Reykjavík 22. desember 2008 14:47 Frá fundi borgarstjórnar í ágúst sl.
Borgarstjórnarflokkur Vinstri grænna vill dreifa álagi og hækka útsvar í Reykjavík. Hámarksútsvar hefur verið 13,03% en Alþingi samþykkti á dögunum að heimila sveitarfélögum að hækka útsvar í 13,28%. Reyjavíkurborg hefur nýtt sér hámarksútsvar undanfarin ár. Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, lagði til á fundi borgarráðs á laugardaginn að útsvar verði óbreytt eða 13,03% þrátt fyrir heimild Alþingis. Svandís Svavarsdóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna, lagði þá til breytingartillögu sem gekk út að fullnýta heimild borgarinnar til hækkunar útsvars. Hærra útsvar kemur þyngra niður á þeim efnameiri Miðað við þær aðstæður sem nú eru uppi er rétt að nýta tekjustofna borgarinnar, að mati Svandísar. Í samtali við Vísi sagði hún að útsvar komi þyngra niður á þeim sem njóta hærri tekna meðan hætt er við að hagræðing komi niður á þeim sem síst skyldi. Matur fyrir öll grunnskólabörn eða frítt í strætó ,,Þannig er álaginu dreift og unnt að nýta tekjurnar til að standa straum af verkefnum sem nýtast öllum og til að efla velferð og samfélagslegt öryggisnet í samdrættinum," sagði Svandís. Máli sínu til stuðnings sagði hún þessa útsvarshækkun gefa borgarsjóði 680 milljónir í tekjur og fyrir þá upphæð væri hægt að greiða skólamat fyrir öll grunnskólabörn í borginni. Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi F-lista, tók undir tillögu Svandísar og benti á að fyrir 580 milljóna króna viðbótarframlag væri hægt að hafa ókeypis í Strætó á höfuðborgarsvæðinu. Tillögu Svandísar var vísað til borgarstjórnar. Aukafundur borgarstjórnar hófst klukkan 14 og stendur yfir.
Mest lesið Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Innlent Fleiri fréttir Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásynd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Áherslur meirihlutasáttmálans: Svari ákalli um breytingar Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Þögull sem gröfin Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Alþjóðlegur sérfræðingur til liðs við Eyjagöng Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Vilja fresta ESB-atkvæðagreiðslu þar til í október Vegavinna á Reykjanesbraut vestan Straumsvíkur Segir andstæðinga viðræðna leita í handbók Farage og Reform Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Sjá meira