Erlent

Börn fundu höfuð í plastpoka

Lögreglumenn á hestum í flæðarmáli strandar á Skotlandi.
Lögreglumenn á hestum í flæðarmáli strandar á Skotlandi. MYND/AFP

Börn sem voru að leik á strönd í Tayside í Skotlandi í dag fundu höfuð konu í plastpoka. Hönd konu fannst í næsta nágrenni. Lögreglan segir að tvær ungar systur hafi verið að leik á Arbroath strönd í Angus þegar þær fundu höfuðið. Þær sögðu móður sinni frá fundinum og hún hafði samband við lögregluna.

Lögregla hefur girt af svæðið á ströndinni og segir að verið sé að fjarlægja líkamspartana sem verði rannsakaðir ítarlega. Sérstök sveit innanríkisráðuneytisins sem höndlar meiriháttar glæpamál hefur verið sett á fót til að aðstoða við rannsóknina.

Talsmaður Tayside lögreglunnar staðfesti þetta við Sky fréttastofuna en gaf ekki upp aldur stúlknanna. Hún sagði að fjöldi rannsóknarlögreglumanna væri enn við leit á ströndinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×