Innlent

Brotist inn í Lyfju og félagsmiðstöð á Skagaströnd

Miklar skemmdir voru unnar í Lyfju á Skagaströnd í nótt og mikið magn lyfja tekið þegar brotist var þangað inn. Lögreglu var gert viðvart eftir að viðvörunarkerfi apóteksins fór af stað. Samkvæmt heimildum Lögreglunnar á Blönduósi var brotist inn í apótekið bakdyramegin. Innbrotsþjófurinn fór í gegnum glugga inn á gang þar sem hann braut sér leið inn um bakdyr apóteksins.

Auk lyfjanna var tekið fjármagn úr kössum. Miklar skemmdir voru unnar á húsnæðinu og meðal annars skemmdur skápur með sterkum lyfjum sem reynt var að opna, án árangurs þó.

Þá var einnig brotist inn í félagsmiðstöðina Undirheima sem er á efri hæð hússins. Þar voru teknir skjávarpar, hljómtæki, hátalarar og peningar sem unglingar höfðu safnað í sjóð.

Megnið af hljómtækjunum fannst bak við hús skammt frá þar sem þeim hafði verið pakkað inn í plastpoka.

Böndin bárust fljótt að manni sem braust inn í sama apótek fyrir 3-4 vikum síðan. Hann var handtekinn á heimili sínu í morgun þar sem hann svaf ölvunarsvefni í hrúgu af lyfjum og peningum. Maðurinn gistir nú fangageymslur. Hann verður yfirheyrður þegar líður á daginn og víman rennur af honum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×