Innlent

Enn leitað að loðnu við Vestmannaeyjar

Loðnuskip við Vestmannaeyjar.
Loðnuskip við Vestmannaeyjar. MYND/Óskar P. Friðriksson

Fimm loðnuskip eru enn við loðnuleit við Vestmannaeyjar en ekkert hefur sést í morgun, að sögn Sturlu Þórðarsonar, skipstjóra á Berki NK. Veiðin í gær út af Eyjafjöllum var nánast engin og telur Sturla að loðnuveiðin sé búin að þessu sinni, svo fremi sem ekki komi vesturganga.

Ef ekkert sést á næstu klukkustundum við suðurströndina má telja líklegt að þau fáu skip sem eftir eru færi sig aftur vestur fyrir Reykjanes í von um loðnugöngur með vesturströndinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×