Vísbendingar um minni athygli ökumanna við stýrið 14. mars 2008 14:20 MYND/Anton
Gatnamót Grensásvegar og Miklubrautar voru tjónamestu gatnamót landsins í fyrra samkvæmt samantekt Forvarnahúss Sjóvar. Þar urðu 58 bótaskyld tjón og þar slösuðust 16 manns og nam tjónið 95 milljónum króna. Samantekt Forvarnahússins leiðir einnig í ljós að tjónum fjölgaði á landinu öllu í fyrra um 3,7 prósent og slösuðum einstaklingum um rúm ellefu prósent. Þegar aðeins er litið til höfuðborgarsvæðisins fjölgaði tjónum hins vegar um tæp tvö prósent og slösuðum um rúm níu prósent. Voru bótaskyld tjóna á höfuðborgarsvæðinu alls 13.700 í fyrra. Veruleg aukning hefur orðið á tjónum á helstu stofnæðum höfuðborgarsvæðisins segir í tilkynningu Forvarnahússins og eru vísbendingar um minni athygli ökumanna við akstur þar sem bæði aftanákeyrslum og tjónum þar sem ekið er á kyrrstæða hluti fjölgaði um 45 prósent milli ára. Kostnaður vegna umferðar ekki undir 16 milljörðum Í samantektinni, sem ekki nær til annarra tjóna en þeirra sem bætt eru úr ábyrgðartryggingu bíla, var kostnaður tryggingafélaganna fyrir tjónin í Reykjavík einni rúmir 6,5 milljarðar. Er það veruleg aukning frá árinu 2006 eða um 39 prósent. Við þennan kostnað bætist tjón tjónvaldanna ásamt kostnaði samfélagsins, þ.e. opinberra aðila, s.s. Tryggingastofnunar, sjúkrahúsa, lögreglu o.s.frv. Segir Forvarnahús að gróflega megi gera ráð fyrir að kostnaður vegna umferðarinnar í Reykjavík sé ekki undir 16 milljörðum króna. Miklabrautin tjónamest gatna Miklabrautin tjónamesta gata landsins en 600 tjón urðu á götunni í fyrra og er það um 30 prósenta fjölgun milli ára. Á Miklubrautinni slösuðust 110 einstaklingar sem er örlítil fækkun frá 2006. Kostnaður tryggingafélaganna vegna tjóna á Miklubraut var 403 milljónir króna og ef annar kostnaður er tekinn með er hann ekki undir 800 milljónum króna. Önnur tjónamesta gatan er Kringlumýrarbraut með 523 tjón og síðan Reykjanesbrautin með 474 tjón. Þar urðu hins vegar flest slysin og slösuðust 145 þar í fyrra. Algengustu tjónin samkvæmt samantekt Forvarnahússins eru eru aftanákeyrslur eða um 65 prósent tjóna á Miklubraut og 63 prósent tjóna á Kringlumýrarbraut. Þessar tölur eru aðallega skýrðar út frá mjög þéttri og hraðri umferð. Undanfarin ár hafa gatnamót Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar verið efst á lista yfir tjónamestu gatnamótin. Nú eru þau í 2. sæti. en gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar hljóta þann vafasama heiður að vera tjónamestu gatnamótin. Af 11 tjónamestu gatnamótunum eru 5 þeirra á Kringlumýrarbraut og 4 á Miklubraut. Aftanákeyrslur algengasta orsök slysa Aftanákeyrslurnar voru algengasta orsök slysa í Reykjavík eða í 47 prósent tilvika. 832 einstaklingar slösuðust í aftanákeyrslum og hefur þeim slysum fjölgað verulega frá 2006 þegar 41 prósent slysa voru í aftanákeyrslum. Veruleg fjölgun hefur orðið á óhöppum þar sem ekið er á kyrrstæða hluti og reyndar var mest aukning í þessum flokki ásamt aftnaákeyrslum. Árið 2006 voru þessi tjón 1651 talsins en í fyrra voru þau orðin 2400 sem er 45 prósenta aukning. Þá fjölgaði slösuðum úr 100 í 161 í þessum flokki sem er rúm 60 prósenta aukning.
Mest lesið Sérveitin kölluð út að vopnaðri líkamsárás á Selfossi Innlent Fjölskyldu konunnar grunaði ekkert Innlent Kröfunni hafnað og starfsmönnunum sleppt Innlent Sláandi niðurstöður um afstöðu Dana til sambandsins við Bandaríkin Erlent Fyrrverandi eiginmaður Bidens ákærður fyrir morð Erlent Öðru embætti falið að rannsaka andlátið Innlent Rétt var að svipta Guðmund Karl lækningaleyfinu Innlent „Svona rosaleg vanlíðan getur ekki staðið endalaust“ Innlent Fórnarlömb vilja láta loka á Epstein-skjölin Erlent Fara fram á gæsluvarðhald yfir starfsmönnum Hraunbúða Innlent Fleiri fréttir Sérsveitin brást við slagsmálum á Selfossi: „Í það minnsta kylfa notuð“ Telja eðlilegt að gusurnar greiði gjald Rannsókn hófst eftir tilkynningu starfsmanns Rannsókn á andlátinu hófst eftir tilkynningu starfsmanns „Af öllum vondu málum ríkisstjórnarinnar finnst mér þetta það versta“ Starfsmenn á bráðamóttöku með berkla en ekki taldir smitandi Snjóleysi í Reykjavík í janúar ekki einsdæmi en afar fátítt Kröfunni hafnað og starfsmönnunum sleppt Fjölskyldu konunnar grunaði ekkert Sérveitin kölluð út að vopnaðri líkamsárás á Selfossi Borgarstjórn vill að börn fái frítt í Strætó Unglingaofbeldi eykst: „Slagsmál geta hreinlega endað með manndrápi“ Grafið í háspennustreng í Urriðaholti Skæð fuglaflensa í villtum fuglum á höfuðborgarsvæðinu Fara fram á gæsluvarðhald yfir starfsmönnum Hraunbúða Andlát í Eyjum til rannsóknar og listería á Vitatorgi Ekki staðfest að veikindi fimm tengist listeríu í salati Árekstur í Urriðaholti Miðflokkurinn býður fram í Vestmannaeyjum Kona kastaði flösku í höfuð manns Öðru embætti falið að rannsaka andlátið Rétt var að svipta Guðmund Karl lækningaleyfinu Átta frambjóðendur VG berjast um þrjú sæti á lista í Reykjavík Litlar breytingar á fylgi flokkanna Nakinn á rölti og hrækt í hár ökumanns „Svona rosaleg vanlíðan getur ekki staðið endalaust“ Þriðjungi finnst erfitt að fylgjast með fréttum Segir loðnuna allsstaðar kveikja vertíðarstemningu „Þá kemur bara allt í einu högg“ Tveir handteknir í tengslum við andlát í Vestmannaeyjum Sjá meira