Fasteignamarkaður að kólna 11. janúar 2008 18:28
540 kaupsamningum var þinglýst í desember og fækkaði þinglýstum samningum töluvert frá fyrri mánuði. Veltan í desember nam 19,5 milljörðum króna miðað við 18,5 milljarða í desember árið 2006 og er það til marks um að enn sé ágætis hiti á markaðnum, að mati Greiningadeildar Kaupþings. Einnig stóð vísitala íbúðaverðs í desember í 352,1 stigi miðað við 351,9 stig í nóvember. Vísitalan hækkaði um 0,1% frá fyrri mánuði en þriggja mánaða hækkun nam 1,3%. Greiningadeild segir þó að varast beri að draga of víðtækar ályktanir af breytingum milli mánaða þar sem sveiflur geti verið miklar. Enn mælist töluverð hækkun frá fyrra ári, en vísitala íbúðaverðs hækkaði um 15% samanborið við desember 2006.Hæg aðlögun Greiningadeild segir að svo virðist sem hæg aðlögun sé nú að eiga sér stað á fasteignamarkaði. „Árið 2007 einkenndist m.a. af sterkri eftirspurn sem endurspeglaðist í mikilli veltu á fasteignamarkaði á borð við það sem sást á árunum 2004-2005. Að undanförnu hefur ró færst yfir markaðinn en fá merki eru um að mikil dýfa sé í aðsigi. Enn sem komið er velta á fasteignamarkaði meiri en árið 2006 og vöxtur vísitölu íbúðaverðs á ársgrundvelli nemur enn tveggja stafa tölu. Í ljósi nýjustu atburða á fjármálamörkuðum má telja líklegt að stýrivextir Seðlabanka Íslands lækki fyrr og hraðar en áður var talið. Slíkt mun hafa jákvæð áhrif á fjármögnunarkosti á fasteignamarkaði," segir Greiningadeild. Líklegt að ástandið versni Greiningadeild segir jafnframt að á allra næstu mánuðum megi gera ráð fyrir að enn dragi úr umsvifum og fasteignamarkaðurinn frjósi með nafnverðslækkunum. Dregið hafi verulega úr útlánum innlánsstofnanna sem endurspeglist meðal annars í vaxtahækkunum undanfarinna missera. Versnandi lánakjör megi meðal annars sjá á minnkandi meðalupphæð húsnæðislána í desember sem námu tæpum átta milljörðum króna miðað við tæplega tíu milljarða á sama tíma árið 2006.
Mest lesið Vaktin: Tillagan samþykkt og annarri umræðu um veiðigjöld lokið Innlent Vændiskaupendur séu oftast fjölskyldufeður á leið til vinnu eða fundar Innlent „Hann er að eigna sér eitthvað sem hann á ekki“ Innlent Fordæmalaus ákvörðun sem gæti breytt Alþingi til framtíðar Innlent Lögregla rannsakar alvarlegt slys í Lágafellslaug Innlent Hóta að loka svæðinu við Seljalandsfoss Innlent Velti bílnum við Fjarðarhraun Innlent Indversk tenniskona skotin til bana af föður sínum við morgunverðarborðið Erlent Lögregla rannsakar slys í sundlauginni í Stykkishólmi Innlent Krefjast bóta verði ekki fallið frá áformum um skólaþorp Innlent Fleiri fréttir Opinberar gamalt ástarsamband við táningsstúlku „Liggur alveg ljóst fyrir að þetta frumvarp er drasl“ Forstöðumaður spilar og syngur fyrir gesti Sundlaugar Akureyrar Sögulegur dagur á Alþingi og vændi í Airbnb-íbúðum Árekstur bíls og vespu á Hafnarfjarðarvegi Sögulegur dagur á Alþingi: Lýðræðisákvæði eða kjarnorkusprengja? Varðskipið Þór heldur heim frá Noregi í næstu viku Frumvarpið komið yfir erfiðasta hjallann en gæti átt nóg eftir Einn handtekinn í mansalsrannsókn lögreglunnar Vændiskaupendur séu oftast fjölskyldufeður á leið til vinnu eða fundar Lögregla rannsakar slys í sundlauginni í Stykkishólmi Kristrún fái ef til vill að bragða á eigin meðali fyrr en síðar Hóta að loka svæðinu við Seljalandsfoss „Hann er að eigna sér eitthvað sem hann á ekki“ „Hræðilegar fréttir fyrir lýðræðið á Íslandi“ Fordæmalaus ákvörðun sem gæti breytt Alþingi til framtíðar Dramatík á Alþingi og bílastæðablús hjá World Class Velti bílnum við Fjarðarhraun Flytja hluta starfsemi SAk vegna myglu Sjá ekki fyrir endann á umfangsmikilli rannsókn á fíkniefnaframleiðslu „Þetta er alvarlegur áfellisdómur yfir forsætisráðherra“ Vaktin: Tillagan samþykkt og annarri umræðu um veiðigjöld lokið Fundu 36 hugsanlega þolendur mansals á Íslandi í alþjóðlegri lögregluaðgerð „Eftir þetta hvassviðri í þinginu í gær heldur lífið áfram“ Tekjur af laxveiði í Borgarfirði eru vel yfir 50% af tekjum landbúnaðar á svæðinu Krefjast bóta verði ekki fallið frá áformum um skólaþorp Halda áfram að ræða veiðigjöldin Tekur önnur Íslendinga þátt í erfiðustu og lengstu kappreið í heimi Draga Dettifoss til Reykjavíkur Sleginn í andlitið með hnúajárni Sjá meira