Innlent

Fasteignamarkaður að kólna

540 kaupsamningum var þinglýst í desember og fækkaði þinglýstum samningum töluvert frá fyrri mánuði. Veltan í desember nam 19,5 milljörðum króna miðað við 18,5 milljarða í desember árið 2006 og er það til marks um að enn sé ágætis hiti á markaðnum, að mati Greiningadeildar Kaupþings.

Einnig stóð vísitala íbúðaverðs í desember í 352,1 stigi miðað við 351,9 stig í nóvember. Vísitalan hækkaði um 0,1% frá fyrri mánuði en þriggja mánaða hækkun nam 1,3%. Greiningadeild segir þó að varast beri að draga of víðtækar ályktanir af breytingum milli mánaða þar sem sveiflur geti verið miklar. Enn mælist töluverð hækkun frá fyrra ári, en vísitala íbúðaverðs hækkaði um 15% samanborið við desember 2006.

Hæg aðlögun

Greiningadeild segir að svo virðist sem hæg aðlögun sé nú að eiga sér stað á fasteignamarkaði. „Árið 2007 einkenndist m.a. af sterkri eftirspurn sem endurspeglaðist í mikilli veltu á fasteignamarkaði á borð við það sem sást á árunum 2004-2005. Að undanförnu hefur ró færst yfir markaðinn en fá merki eru um að mikil dýfa sé í aðsigi. Enn sem komið er velta á fasteignamarkaði meiri en árið 2006 og vöxtur vísitölu íbúðaverðs á ársgrundvelli nemur enn tveggja stafa tölu. Í ljósi nýjustu atburða á fjármálamörkuðum má telja líklegt að stýrivextir Seðlabanka Íslands lækki fyrr og hraðar en áður var talið. Slíkt mun hafa jákvæð áhrif á fjármögnunarkosti á fasteignamarkaði," segir Greiningadeild.

Líklegt að ástandið versni



Greiningadeild segir jafnframt að á allra næstu mánuðum megi gera ráð fyrir að enn dragi úr umsvifum og fasteignamarkaðurinn frjósi með nafnverðslækkunum. Dregið hafi verulega úr útlánum innlánsstofnanna sem endurspeglist meðal annars í vaxtahækkunum undanfarinna missera. Versnandi lánakjör megi meðal annars sjá á minnkandi meðalupphæð húsnæðislána í desember sem námu tæpum átta milljörðum króna miðað við tæplega tíu milljarða á sama tíma árið 2006.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×