Auglýsa Ísland sem ódýran áfangastað 7. október 2008 16:54 MYND/Valli
Forsvarsmenn Icelandair hafa hrint af stað auglýsingaherferð á markaðssvæðum sínum í útlöndum þar sem fólki er bent á að hversu hagkvæmur áfangastaður Ísland er orðið. Lækkandi gengi krónunnar hefur það í för með sér að gisting, matur og drykkur hér á landi verður ódýrari í erlendri mynt en áður. „Það eru tækifæri í þessu fyrir okkur og eins og ráðamenn þjóðarinnar hafa bent á er ferðaþjónustan auðlind," segir Guðmundur Óskarsson, forstöðumaður markaðs- og viðskiptaþróunar hjá Icelandair. Hann segir fyrirtækið hafa ákveðið að setja fjármuni í þessa kynningu, bæði með auglýsingum og fréttatilkynningum. Þar sé ferðamönnum bent á að gengið vinni með þeim. Markaðasstarfið nær til allra svæða Icelandair, hinna norrænu ríkjanna, stærstu borga Evrópu og Bandaríkjanna. Aðspurður segir segir hann of snemmt að segja til um hvort herferðin skili árangri enda sé hún rétt að fara af stað. Forsvarsmenn fyrirtækisins bindi miklar vonir við þetta samfara öðrum breytingum hjá flugfélaginu. „Við erum að auka þjónustuna með því að bæta við nýju farrými og taka út sætaröð og svo erum við með nýtt afþeyingarkerfi. Þetta gefur Icelandair forskot á markaðnum," segir Guðmundur. „Í þessari kreppu þá er það þannig að við teljum okkur hafa auðlind sem við getum nýtt og þjóðina vantar gjaldeyri. Hér eru því stór tækifæri," segir Guðmundur enn fremur. Hann segir að félagið eigi í viðræðum við stjórnvöld um það hvernig auka megi straum ferðamanna hingað til lands enn frekar en fyrirtækið hafi lengið unnið að því.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira