Hæstiréttur: Eiríkur greiði Þóru í Atlanta hálfa milljón 2. október 2008 16:35 Eiríkur Jónsson núverandi ritstjóri Séð og heyrt.
Hæstiréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Þóru Guðmundsdóttur gegn Eiríki Jónssyni blaðamanni, Mikael Torfasyni fyrrverandi ritstjóra Séð & heyrt og Þorsteini Svani Jónssyni sem seldi Þóru einbýlishús. Þeir tveir síðarnefndu voru sýknaðir en Eiríkur þarf að greiða Þóru 500.000 krónur í skaðabætur. Um er að ræða grein sem birtist í Séð og heyrt undir fyrirsögninni "Þóra er blönk" og er Eiríkur höfundur greinarinnar. Snérist málið um einbýlishús sem Þóra lét byggja fyrir sig og gekk þeim sem það gerði erfiðlega að fá greitt fyrir vinnu sína. Mikael Torfasyni þáverandi ritstjóra Séð og heyrt var einnig stefnt en hann var sýknaður. Þorsteinn Svanur Jónsson sem seldi Þóru einbýlishúsið var einnig sýknaður. En Þorsteinn höfðaði mál gegn Þóru sem var þingfest skömmu áður en umdeild ummæli birtust í Séð og heyrt. Þau náðu sátt í því máli og málið því fellt niður. Eftirfarandi ummæli voru hinsvegar dæmd dauð og ómerk "Þóra er blönk" "Þóra Guðmundsdóttir í Atlanta hefur látið byggja stærsta einbýlishús í Kópavogi í Asparhvarfi en gallin er bara sá að hún hefur ekki enn borgað krónu í því." "Hann er að bíða eftir 120 milljónum frá einni ríkustu konu landsins. Sjálfur er hann farinn að halda að Þóra sé blönk." "Svanur í Trompverki segist hafa ætlað að afhenda Þóru húsið fyrir ári en ekki gert það þar sem hún hafi ekki enn borgað krónu í því." Einnig voru nokkur ummæli sem Þorsteinn Svanur lét hafa eftir sér dæmd dauð og ómerk. "Hún hlýtur að vera orðin blönk...." "Og hún virðist blönk því hún hefur ekki einu sinni greitt gatnagerðargjöldin, hvað þá sérpöntuðu flísarnar frá Kína sem ég pantaði og klæddi húsið með að utan." "Nema hún sé orðin blönk...." Ummælin "Þóra í Atlanta borgar mér ekki" sem birtust á forsíðu blaðsins eru hinsvegar ekki dæmd dauð og ómerk eins og farið var fram á. Í niðurstöðu Hæstaréttar segir að með hliðsjón af því að framsetning umræddar opnugreinar sýnist til þess gerð að auka sölu blaðsins, sé fjárhæð miskabóta hæfilega ákveðin í hinum áfrýjaða dómi.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira