Grætur eftir að hafa tapað forsetaslag 12. nóvember 2008 12:53 MYND/AP
John McCain öldungadeildarþingmaður segist gráta hástöfum eftir að hafa tapað fyrir Barack Obama í forsetakosningunum. John McCain hefur veitt sitt fyrsta sjónvarpsviðtal eftir að úrslit kosninganna lágu fyrir. Hann kaus að gera það með því að mæta í kvöldþáttinn hjá Jay Leno. Aðspurður um hvernig honum liði eftir ósigurinn sagði McCain að hann svæfi eins og barn. „Ég sef í tvo tíma svo vakna ég og græt og svo sef ég aftur í tvo tíma,“ sagði þingmaðurinn og uppskar mikinn hlátur og lófatak. McCain sagði einnig að daginn eftir kosningarnar hefðu hann og Cindy eiginkona hans fengið sér kaffibolla um morguninn en ekki lesið blöðin. Á alvarlegri nótum sagði hann að því færi fjarri að Sara Palin bæri ábyrgð á tapinu. „Ég er stoltur af henni og þakklátur fyrir að hún skyldi bjóða sig fram með mér. Hún var fólki innblástur og er það ennþá,“ sagði McCain. Hann vísaði á bug gagnrýni manna úr eigin herbúðum sem segja að Palin hafi verið honum fjötur um fót vegna yfirgripsmikillar vankunnáttu á heimsmálunum. Því var meðal annars haldið fram að Palin hafi ekki vitað að Afríka væri heimsálfa en ekki eitt ríki.
Mest lesið Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Innlent Viðvaranirnar appelsínugular og hviður yfir 40 metrum á sekúndu Veður Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Erlent „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“ Erlent Flugliðanum bjargað eftir hættulega björgunaraðgerð Erlent Flugliðinn nú „alvarlega særður“ Erlent Sautján ára drengur lést í snjóflóði Erlent Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Innlent „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Innlent Loka Holtavörðuheiði í hádeginu og um Suðurlandið strax í fyrramálið Veður Fleiri fréttir Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Flugliðinn nú „alvarlega særður“ Kanna skothvelli við Hvíta húsið Upplausn í Borgaraflokknum og formaðurinn sakaður um alræði „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“ Sautján ára drengur lést í snjóflóði Flugliðanum bjargað eftir hættulega björgunaraðgerð Karlmenn þurfa leyfi til að ferðast lengur en í þrjá mánuði „48 klukkustundir þar til allt fer til fjandans“ Mafíuforingi á flótta handtekinn í lúxusvillu á Amalfi-strönd Ekki þeir einu sem leita flugmannsins Ekki vopnahlé um páskana heldur regn sjálfsprengidróna Loksins sinni einhver í Westminster vinnunni sinni NASA deilir myndum af jörðinni: „Treystið okkur, þið lítið æðislega vel út“ Svarar engu um hver viðbrögð yrðu næðu íranskar hersveitir til flugmannsins Mímir hótaði að siga Vítisenglum á gagnrýninn borgara Önnur orrustuþota sögð hafa hrapað Óhapp um borð sem á sér engin fordæmi Einum úr áhöfninni bjargað Bondi vikið úr embætti dómsmálaráðherra Gerði grín að Macron og eiginkonu hans með frönskum hreim Íranir verði sendir aftur til steinaldar en viðræður standi yfir Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Sjálfsprengidrónum rignir yfir bæði Úkraínu og Rússland Áætlunarflug prófað á rafmagnsflugvélum Fyrsta mannaða tunglskotið frá 1972: Lögð af stað til tunglsins Ætla að fá þjóðernisflokki völdin í innflytjendamálum Segir NATO „pappírstígur“ og íhugar að hætta Dómari stöðvar framkvæmdir við veislusalinn Rýma svæði í Austur-Finnlandi vegna úkraínsks sprengjudróna Niðurgreiða þyndarstjórnunarlyf fyrir þá sem hafa fengið hjartaáfall eða heilablóðfall Sjá meira