Innlent

„Þessir vextir eru allt lifandi að drepa“

Atli Steinn Guðmundsson skrifar

Staða krónunnar og atburðarásin hjá lögreglu- og tollstjóraembættinu á Suðurnesjum var meðal þess sem bar á góma hjá Agli Helgasyni í Silfrinu í dag. Meðal gesta Egils voru þingmennirnir Bjarni Benediktsson og Valgerður Sverrisdóttir, Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda, og Hafliði Jósteinsson tómstundafulltrúi.

Þegar talið barst að stöðu krónunnar sagði Gísli Tryggvason að aðgerðir vantaði fyrir fjölskyldur og neytendur í landinu. „Það þarf að bjarga krónunni vegna fólksins," sagði Gísli. „Á meðan Bandaríkjamenn standa fyrir björgunaraðgerðum í efnahagslífinu eru hér bara fundir og umræður. Gengislánin stórhækka, þetta gengur ekki lengur, fólk verður að sjá einhverjar lausnir."

Útilokað að átta sig á stefnu stjórnarinnar

Hafliði Jósteinsson sagði það vera útilokað fyrir fólk að átta sig á því hver væri raunveruleg stefna ríkisstjórnarinnar. „Þessir vextir eru allt lifandi að drepa. Það þýðir ekkert að fá hvern sérfræðinginn á fætur öðrum til að segja þetta og segja hitt, það þarf að gera eitthvað," sagði Hafliði. Hann sagði Evrópusambandsumræðuna bráðnauðsynlega og að skoða yrði alla þætti þess máls. Fólk yrði að hafa raunhæfa stefnu í ESB-málum ef það vildi láta taka sig alvarlega í stjórnmálum.

Bjarni Benediktsson sagði að nú kæmi það ekki til greina lengur að velja eingöngu það dýrasta og besta heldur yrði að sýna aðhaldssemi, hvort tveggja hjá ríki og sveitarfélögum, og nefndi hann Sundabraut sérstaklega sem dæmi.

Rætt var um mál Jóhanns Benediktssonar, lögreglu- og tollstjóra á Suðurnesjum, sem láta mun af embætti í vikunni. Valgerður Sverrisdóttir sagði málið óskaplega ljótt og leiðinlegt. „Þetta er hæfur og öflugur embættismaður sem um er að ræða. Að auglýsa stöðu án þess að maður hafi brotið af sér er mjög óvenjulegt," sagði Valgerður.

Bjarni Benediktsson sagði atburðarásina óvænta en þó væri ekki hægt að líta fram hjá því að hugmyndir Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra ættu sér fulla stoð í stjórnkerfinu, meðal annars hjá Ríkisendurskoðun. „Nú getur Sjálfstæðisflokkurinn sýnt helsta styrkleika sinn sem er að standa saman um stefnuna," sagði Bjarni.

„Sjálfstæðisflokkurinn á eftir að fá rækilega á baukinn vegna þessa máls," sagði Hafliði Jósteinsson. „Fólkið í landinu sér þarna á eftir góðum manni."












Fleiri fréttir

Sjá meira


×