RÚV braut ekki siðareglur með umfjölllun um Guðmund 20. október 2008 09:05
Siðanefnd Blaðamannafélagsins hefur komist að þeirri niðurstöðu að fréttamaður Ríkisútvarpsins hafi ekki brotið siðareglur í umfjöllun sinni um samskipti Guðmundar Þóroddssonar, fyrrverandi forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur, og fyrirtækisins. Greint var frá því í fréttum Sjónvarps í sumar að Orkuveita Reykjavíkur krefðist þess að Guðmundur Þóroddsson, fyrrverandi forstjóri OR, skilaði gögnum, bifreið, farsíma og tölvu sem voru í vörslu hans. Var málið kynnt með orðunum: Neitar að skila trúnaðargögnum. Guðmundur sendi fjölmiðlum yfirlýsingu daginn eftir þar sem hann sagðist ekki hafa tekið nein skjöl úr skjalageymslu Orkuveitunnar eins og haldið hefði verið fram í fréttinni. Þrátt fyrir þetta hefði Sjónvarpið ekki sé ástæðu til að leiðrétta fréttina frá kvöldinu áður. Guðmundur fór í framhaldinu fram á það að fréttastofa Sjónvarps drægi frétt sína til baka og bæðist afsökunar á aðdróttunum sem í henni fælist. Við þessu varð fréttastofan ekki og því leitaði Guðmundur til siðanefndarinnar. Siðanefndin bendir á að daginn eftir að fréttin var flutt hafi önnur frétt verið sögð af málinu þar sem vitnað hefði verið til yfirlýsingar Guðmundar og samtals við hann þar sem hann lýsir furðu sinni á umræddum fréttaflutningi og kveðst ekki hafa tekið gögn úr skjalageymslu Orkuveitunnar. Benti siðanefnd á að fréttastofa Sjónvarps teldi sig hafa traustar heimildir fyrir málinu og að með því að greina frá atriðum í yfirlýsingu Guðmundar Þóroddssonar hefði ónákvæmt orðalag verið leiðrétt enda þótt orðið leiðrétting hefði ekki verið notað né hann beðinn afsökunar.
Mest lesið Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Innlent Viðræður við Íran hefjist á morgun Erlent Miðaði byssu á annan mann Innlent Tveir lagðir við gangstéttina Innlent Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Innlent Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Erlent Siggi stormur sár en dregur ekki í land Innlent „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Innlent Guðmundur Felix kominn með krabbamein Innlent Knapi datt af baki Innlent Fleiri fréttir Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Efnahags- og Evrópumál, hvalveiðar og laxeldi á landi á Sprengisandi Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Sumarhús við Þingvallavatn eyðilagðist í eldsvoða Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Hvorki tilkynnt um kynferðisbrot né líkamsárás fyrstu nóttina Líður eins og Gísli á Uppsölum sé kominn heim Slasaðist á fæti uppi á hálendi Veðrið „eins og eftir pöntun“ Guðmundur Felix kominn með krabbamein Sjá meira