Voðaskotið í Rússlandi: Líklega réttað yfir stúlkunni hér á landi 20. október 2008 13:48 Frá Rússlandi
Rússneskir fjölmiðlar fjalla um mál íslensku stúlkunnar sem var skiptinemi í borginni Astrakhan í Rússlandi og varð ungum pilti að bana fyrr í mánuðinum. Stúlkan sem nú er stödd á Íslandi er sögð eiga yfir höfði sér allt að tveggja ára fangelsisdóm verði hún sótt til saka í landinu. Líklegra þykir þó að mál hennar verði rekið fyrir íslenskum dómstólum. Það er fréttamiðillinn Moscow Times sem fjallar um mál stúlkunnar sem er sautján ára gömul og varð völd að voðaskoti sem leiddi til dauða pilts í fjölskyldunni sem stúlkan dvaldi hjá. Líkt og Vísir sagði frá varð óhappið á föstudaginn í þarsíðustu viku en stúlkan kom til Íslands síðasta fimmtudag fyrir tilstuðlan sendiráðs Íslands í Moskvu. Rannsóknarlögreglan er sögð rannsaka málið sem morðmál en stúlkan er sögð hafa flúið land. Utanríkisráðuneytið hefur þó gefið út að stjórnvöld í Rússlandi hafi þegar verið látin vita af veru stúlkunnar hér á landi. Í umræddri blaðagrein er því haldið fram að verði stúlkan sótt til saka í Rússlandi gæti hún átt allt að tveggja ára fangelsisdóm yfir höfði sér. Sagt er frá aðdraganda óhappsins en stúlkan er sögð hafa hringt í lögreglu og sjúkralið sem hafi mætt á staðinn. Pilturinn lést hins vegar fjórum dögum síðar. Talsmaður Ríkissaksóknara segir að ekki hafi enn verið tekin ákvörðun um hvort krafist verði framsals á stúlkunni frá Íslandi þar sem rannsókninni sé ekki lokið og málið ekki komið í þeirra hendur. Talsmaðurinn taldi þó líklegra að málið verði sent til Íslands og réttað verði yfir stúlkunni á Íslandi.
Tengdar fréttir Voðaskotið í Rússlandi: Íslenska stúlkan kom til Íslands í gær „Við getum staðfest það að 17 ára íslensk stúlka sem var skiptinemi í bænum Astrakahn í Rússlandi varð fyrir því að eiga aðild að því sem samkvæmt okkar heimildum er slysaskot. Það olli því að tvítugur piltur lést af völdum skotsársins á sjúkrahúsi," segir Pétur Ásgeirsson skrifstofustjóri hjá Utanríkisráðuneytinu. 17. október 2008 13:48 Mest lesið Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Innlent Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Innlent Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Innlent Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Innlent Fleiri fréttir Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Sjá meira
Voðaskotið í Rússlandi: Íslenska stúlkan kom til Íslands í gær „Við getum staðfest það að 17 ára íslensk stúlka sem var skiptinemi í bænum Astrakahn í Rússlandi varð fyrir því að eiga aðild að því sem samkvæmt okkar heimildum er slysaskot. Það olli því að tvítugur piltur lést af völdum skotsársins á sjúkrahúsi," segir Pétur Ásgeirsson skrifstofustjóri hjá Utanríkisráðuneytinu. 17. október 2008 13:48