Lífið

Skandalar ársins sem er að líða

Amy Winehouse gerði fjölmarga skandala á árinu sem er að líða.
Amy Winehouse gerði fjölmarga skandala á árinu sem er að líða.

Það er af mörgu að taka þegar kemur að skandölum ársins 2008 hjá fræga fólkinu. Fréttablaðið tók saman nokkur dæmi um það sem vakti athygli á árinu sem er að líða.

Amy Winehouse gerði fjölmarga skandala á árinu sem er að líða. Hún fór inn og út af meðferðarstofnunum og spítölum og var handtekin nokkrum sinnum fyrir eiturlyfjanotkun og ofbeldisbrot.

Bítillinn Ringo Starr móðgaði marga aðdáendur sína þegar hann bað þá um að hætta að biðja hann um eiginhandaráritanir, sem hann ætlar að hætta að gefa.

George Michael var handtekinn á almenningssalerni, í annað skiptið á ferlinum. Hann var handtekinn í London fyrir vörslu og neyslu eiturlyfja. Aðeins mánuði áður hafði hann lokið tónleikaferðalagi, sem hann segir hafa verið sitt síðasta.

Ungstirnið Miley Cyrus olli fjaðrafoki þegar hún birtist nánast nakin, aðeins með lak um sig, á forsíðu Vanity Fair. Miley var 15 ára og í kjölfar mikillar gagnrýni og umræðu baðst hún afsökunar á myndunum.

Fyrrum ríkisstjóri New York, Eliot Spitzer, komst í heimsfréttirnar þegar New York Times sagði frá því að hann hefði nýtt sér þjónustu vændiskonu. Í ljós kom að hann hafði verið viðskiptavinur sömu vændiskonunnar í mörg ár.

O.J. Simpson var sakfelldur fyrir vopnað rán og mannrán í byrjun október. Í desember var hann svo dæmdur í 15 ára fangelsi fyrir athæfið og lét hafa eftir sér að hann hefði ekki haldið að hann væri að gera neitt af sér.

Fyrrum X-files stjarnan David Duchovny greindi frá því að hann væri á leið í meðferð við kynlífsfíkn, sem kom mörgum á óvart. Nokkrum mánuðum síðar skildi hann við konu sína til 11 ára.

Það vakti mikla athygli þegar innilegar myndir birtust af leikurunum Siennu Miller og Balthazar Getty saman. Getty var enn kvæntur á þeim tíma.

Áberandi O.J. Simpson var sakfelldur fyrir mannrán og vopnað rán sem hann framdi í fyrra. Amy Winehouse gerði fjölmarga skandala á árinu sem er að líða. Miley Cyrus, Disney-stjarnan unga, olli fjaðrafoki með ögrandi myndum í Vanity Fair.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.