Innlent

Áfram fundað um kjarasamning hjúkrunarfræðinga

„Meðan við erum enn að og báðir aðilar sjá eitthvað að vinna úr þá er ástæða til bjartsýni," sagði Elsa B. Friðfinsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, sem setið hefur á samningafundi með samninganefnd ríkisins í morgun.

Hlé var gert á viðræðum nú í hádeginu en byrjað verður aftur að funda klukkan hálftvö. Hjúkrunarfræðingar hafa neitað að skrifa undir sams konar samning og BSRB gerði við ríkið á dögunum og segja að í honum felist kjaraskerðing fyrir stéttina. Skriður komst hins vegar á viðræður við ríkið í gær og aðspurð segist Elsa vona að samkomulag náist milli aðila.

Hjúkrunarfræðingar starfandi hjá ríkinu hafa boðað yfirvinnubann frá klukkan 16 á fimmtudag og því eru aðeins rúmir tveir sólarhringar til stefnu ef koma á í veg fyrir það. Aðspurð hvort hún eigi von á því að samið verði fyrir þann tíma segir Elsa að erfitt sé að segja til um það. „Auðvitað vonar maður það. Markmiðið er að semja en hins vegar gerum við ráð fyrir að yfirvinnubannið taki gildi ef samningar nást ekki," segir Elsa og bætir við: „Ég dreg ekki dul á það að minn fyrsti kostur er að semja."








Fleiri fréttir

Sjá meira


×