37 milljónir sendar til Kongó 5. nóvember 2008 13:47 Anna Stefánsdóttir, formaður Rauða kross Íslands.
Rauði kross Íslands hefur sent 37 milljónir króna til leitarþjónustuverkefnis Rauða krossins í Kongó sem stuðlar að því að sameina fjölskyldur sem hafa sundrast vegna átaka. Þörfin fyrir leitarverkefni Rauða krossins í Kongó er mikil. Átök milli stjórnarhers og uppreisnarhermanna í norðurhluta landsins hafa blossað upp undanfarna daga og vikur og tugþúsundir manna hafa orðið að flýja á nýjan leik. Borgarastyrjöld hefur geisað í landinu síðan árið 1998. Rúmar 18 milljónir söfnuðust í landssöfnun Rauða krossins Göngum til góðs sem haldin var 4. október. Í ljósi þess að aðeins safnaðist um helmingur þeirrar upphæðar sem fékkst í landssöfnuninni árið 2006 ákvað stjórn Rauða krossins að tvöfalda þá upphæð með framlagi úr neyðarsjóði félagsins til að standast væntingar Alþjóða Rauða krossins. Þrátt fyrir erfiða stöðu telur Rauði krossinn mjög mikilvægt að standa við skuldbindingar sínar í alþjóðlegum verkefnum. ,,Við vissum að það var á brattann að sækja vegna efnahagsástandsins í landinu. Við erum því ákaflega þakkát þeim sjálfboðaliðum sem lögðu okkur lið og örlæti þeirra sem gáfu," segir Anna Stefánsdóttir, formaður Rauða kross Íslands, í tilkynningu. ,,Við erum þakklát landsmönnum fyrir að sýna samhug með verkefnum Rauða krossins í Kongó þrátt fyrir erfiða tíma. Það er mikilvægt að geta veitt öðrum þjóðum sem búa við erfið skilyrði aðstoð þó á móti blási á Íslandi, og samstaðan með þeim er ekki síður mikilvæg en það fé sem safnaðist," segir Anna.
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Innlent Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Erlent Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Innlent Fleiri fréttir Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Bein útsending: Kynna húsnæðispakka 2 Grunar sterklega að hinn látni sé ferðamaðurinn sem leitað var að Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Sjá meira