Erlent

Keyptu persónuupplýsingar þúsunda Þjóðverja

Persónuupplýsingar þúsunda Þjóðverja voru til sölu á internetinu, að því er fram kom í gær. Starfsmaður í símaveri í Slésvík-Holstein lét yfirvöld nýlega vita af því að ekki væri allt með felldu í því hvernig farið væri með persónupplýsingar þar. Hann sendi persónuvernd bankaupplýsingar sautján þúsund manns, og í kjölfarið hóf stofnunin rannsókn.

Í gær greindi starfsfólk stofnunarinnar frá því að þeim hefði tekist að kaupa sex milljónir mismunandi gagna, þar á meðal banka- og símanúmera á netinu fyrir 850 evrur. Það telur að upplýsingunum hafi verið stolið frá veðbönkum og farsímafyrirtækjum. Saksóknarar rannsaka nú málið.

Vernd persónuupplýsinga hefur verið mikið í umræðunni í Þýskalandi undanfarna mánuði, en yfirvöld eru að reyna að milda lög um persónuvernd til að hjálpa lögreglu að glíma við hryðjuverk og glæpi.

Fyrr á árinu kom svo Deutsche Telecom, stærsta fjarskiptafyrirtæki Evrópu, viðskiptavinum sínum í opna skjöldu þegar í ljós kom að fyrirtækið hefði hlerað viðskiptavini sína ólöglega. Þá var verslunarkeðjan Lidl rannsökuð í kjölfar ásakana um að þeir fylgdust aðeins of vel með viðskiptavinum sínum. Í kjölfar nýjasta hneykslisins hafa ýmsir stjórnmálamenn hafa farið fram á að lög um persónuvernd verði hert hið snarasta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×