Obama snæddi morgunverð með Tony Blair 26. júlí 2008 12:18
Barack Obama forsetaframbjóðandi í Bandaríkjunum er í Lundúnum þessa stundina og ræðir við þarlenda stjórnmálaforingja. Allt yfirbragð heimsóknar hans til Bretlands er á mun lægri nótum en þegar hann var í Þýskalandi og Frakklandi fyrir helgi. Barack Obama snæddi morgunverð með Tony Blair, fyrrverandi forsætisráðherra og ræðir síðar í dag við David Cameron, leiðtoga breska Íhaldsflokksins. Heimsókn Obamas til Lundúna er í mun lægri gír en heimsókn hans til Berlínar fyrir helgi þar sem hann flutti ástríðufulla ræðu fyrir að minnsta kosti tvö hundruð þúsund manns við Sigursúluna. Bandaríski sendiherrann við bresku hirðina og kona hans tóku á móti Obama á flugvellinum. Þetta er síðasti viðkomustaður frambjóðandans á heimsreisu hans sem ætlað er að sýna hann í nýju ljósi fyrir kjósendur í forsetakosningunum í nóvember. Eftir fundinn með Brown í morgun hitti Obama fréttamenn á hlaðinu í Downing stræti og sagðist hafa átt frábærar viðræður við breska forsætisráðherrann. Hann sagði þá sammála um að öflugt bandalag yfir Atlantshafið væri nauðsynlegt til að takast á við fjölmörg heimsmál sem nú brynnu á fólki. Í því sambandi mætti nefna hryðjuverk, loftslagsbreytingar og fjármálakreppuna sem nú þjakar fólk og fyrirtæki um allan heim. Kjarnorkuáætlun Írana bar einnig á góma, eins og á öðrum viðkomustöðum forsetaframbjóðandans. Í París sagði Obama að Íranir ættu ekki að þurfa að bíða eftir kjöri nýs Bandaríkjaforseta til að leysa kjarnorkudeiluna við Vesturlönd. Þvert á móti ættu Íranir þegar í stað að fallast á kröfur Vesturlanda um að stöðva það sem hann kallaði ólöglega kjarnorkuáætlun. Íranir halda því fram að þeir hafi engan áhuga á kjarnorkuvopnum.
Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Fleiri fréttir Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Sjá meira