Misvísandi upplýsingar um þjóðnýtingu sem þarf að skýra 2. október 2008 17:39 Vilhjálmur Bjarnason, framkvæmdastjóri Samtaka fjárfesta.
Stjórn Samtaka fjárfesta telur að ríkisstjórn og ráðamönnum Seðlabanka og Glitnis beri skylda til að upplýsa almenning um aðdraganda þess að ríkissjóður tók yfir þrjá fjórðu hlutafjár Glitnis. ,,Frásagnir af aðdraganda og framvindu málsins virðast misvísandi. Með það að markmiði að nauðsynlegt traust geti skapast að nýju á íslenskum fjármálamarkaði er nauðsynlegt að glöggar upplýsingar fáist um einstaka þætti málsins," segir í tilkynningu. Stjórn Samtaka fjárfesta spyr eftirfarandi spurninga: • Glitnir taldi sig hafa gengið frá fjármögnun út árið 2008 og vel inn á næsta ár. Hvað breyttist svona skyndilega varðandi fjármögnun Glitnis? • Hvers eðlis voru þau lánsloforð sem Glitnir taldi sig hafa frá erlendum bönkum um eigin fjármögnun þegar þeir gáfu út yfirlýsingar um að bankinn væri fullfjármagnaður? Voru þetta aðeins viljayfirlýsingar eða undirritaðir lánasamningar? • Hvaða skuldabréf voru það sem Glitnir bauð Seðlabankanum að veði fyrir hugsanlegu láni? Er eitthvað því til fyrirstöðu, að listi yfir tegundir skuldabréfanna og hvaða fjárhæðir voru í hverjum skuldabréfaflokki, verði gerður opinber? • Hvaða skýrslur, minnisblöð og greinargerðir Seðlabanka, ríkisstjórnar og Glitnis lágu til grundvallar því mati sem fram fór á skuldabréfunum sem Glitnir bauð að veði? • Hvaða skýrslur, minnisblöð og greinargerðir Seðlabanka, ríkisstjórnar og Glitnis lágu til grundvallar því mati sem fram fór á eignarhlutfalli ríkissjóðs við kaupin á hlut í bankanum? • Geta ráðamenn Glitnis og löggiltir endurskoðendur, PricewaterhouseCoopers, lýst því yfir að í verðbréfasjóðum Glitnis hafi aðeins verið bréf þeirrar tegundar, og í þeim hlutföllum, sem yfirlýst stefna hvers sjóðs segir til um?
Mest lesið Fjölskyldan í haldi vegna gruns um innflutning fíkniefna Innlent Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Innlent „Ekki skemmtilegt fyrir starfsfólk“ Innlent Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Innlent Vill breyta lögum um .is Innlent Útsýnispallurinn talinn öruggur þrátt fyrir sprungur Innlent „Hún féll saman eins og regnhlíf“ Erlent Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Innlent Drengir í haldi grunaðir um undirbúning hryðjuverkaárásar í skóla Erlent Ruglingslegar og misvísandi frásagnir um fjóra til fimmtán árásarmenn Innlent Fleiri fréttir „Við látum ekki fæla okkur aftur inn í skápinn“ „Við erum svolítið strand“ Útsýnispallurinn talinn öruggur þrátt fyrir sprungur Slökktu eld í jepplingi á „örskotsstund“ Ruglingslegar og misvísandi frásagnir um fjóra til fimmtán árásarmenn Engir minkar hafi ratað í gildrur síðustu sólarhringa „Ekki skemmtilegt fyrir starfsfólk“ Gríðarlegur fjöldi fyrir norðan og mikil óþolinmæði á heimleið Kólumbíumenn í haldi og skipverjar Bandero bíða örlaga sinna Fjölskyldan í haldi vegna gruns um innflutning fíkniefna Heimir Hannesson er látinn Breytir ekki veðurspám til að þóknast hátíðahöldurum Skipar nýja bótanefnd Vill breyta lögum um .is Enn eitt innbrotið í miðbænum Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Einn þeirra handteknu sautján ára Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Knapi datt af baki Sjá meira