Erlent

MP3-spilarar geta truflað gangráða

MP3-spilari.
MP3-spilari. MYND/CNET

Bandarískir læknar segja að rannsóknir hafi leitt í ljós að ef heyrnartól eru notuð með MP3 stafrænum spilurum eins og iPod geti það valdið truflunum á hjartagangráðum.

MP3-spilararnir eru í sjálfu sér ekki hættulegir. Í heyrnartólunum eru hins vegar öflugir litlir seglar sem geta valdið truflunum ef þeir eru þrjá sentimetra eða minna frá brjósti manna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×