Innlent

Björn skýtur á Björgvin

Björn Bjarnason dómsmálaráðherra skýtur nokkrum skotum að Björgvini Sigurðsyni viðskiptaráðherra í nýrri færslu á heimasíðu sinni.

Björn skammar Björgvin meðal annars fyrir að hvetja sjálfstæðismenn til þess að taka afstöðu til Evrópusambandsins eins og haft var eftir honum í hádegisfréttum útvarps.

"Sjálfstæðismenn í ríkisstjórn gefa ekki yfirlýsingar um nauðsyn þess, að

Samfylking breyti um stefnu í umhverfismálum eða Evrópumálum. Þeir virða þá stefnu, sem samstarfsflokkur þeirra hefur mótað og þann sáttmála, sem síðan hefur verið gerður um samstarf flokkanna.

Engum sjálfstæðismanni dettur í hug að krefjast þess, að Björgvin ræði um umhverfismál og stóriðju við Þórunni Sveinbjarnardóttur, þótt allir sjái, að þess kunni að vera þörf," skrifar Björn.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×