Erlent

Fjölmiðlum verði bannað að fjalla um þjóðaröryggismál

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands.
Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands.

Bresk stjórnvöld eru nú sögð vinna að undirbúningi lagafrumvarps sem gerir ýmsum valdhöfum kleift að banna fjölmiðlum algjörlega að fjalla um mál sem varða þjóðaröryggi.

Breska blaðið Independent ber ónafngreindan heimildamann innan stjórnkerfisins fyrir þessu og enn fremur því að auk fulltrúa stjórnmálaflokkanna komi aðilar frá bresku leyniþjónustudeildunum MI5 og MI6 að málinu auk fjarskiptamiðstöðvar hennar hátignar. Meðal þeirra sem eiga að geta stöðvað fjölmiðlaumfjöllun eru her, lögregla, ríkisstjórn og fleiri aðilar sem flokkast undir stjórnvöld.

Mannréttindasamtök hafa þegar brugðist ókvæða við og tala um aðför að tjáningarfrelsi.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×