Grunur um starfsemi mansalshringa hér á landi 1. júlí 2008 16:41
Vísbendingar eru um að erlendir aðilar komi í auknum mæli að skipulögðu vændi á Íslandi og grunur leikur á að sú starfsemi tengist mansalshringum einkum í Austur-Evrópu. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu greiningardeildar ríkislögreglustjóra um skipulagða glæpastarfsemi og hættu á hryðjuverkum hér á landi. Þar segir enn fremur að víst þyki að íslenskir ríkisborgarar búsettir hér á landi eigi samstarf við erlenda aðila á þessu sviði skipulagðrar glæpastarfsemi. Verslun með fólk og smygl sé ábatasöm starfsemi og mat glæpahópa sé almennt að slík starfsemi feli ekki í sér mikla áhættu. Því megi ætla að vændi verði umfangsmeira hér á landi í framtíðinni. Um mansal segir greiningardeildin að það sé talin vera sú glæpastarfsemi sem er í hvað örustum vexti nú um stundir. „Grunur um mansal á Íslandi hefur löngum verið tengdur nektardansstöðum og vændi. Ísland virðist einkum vera gegnumstreymisland hvað varðar smygl á fólki. Verslun með konur er ekki talin sérlega áhættusöm. Fyrir liggur að hún skilar miklum hagnaði. Þessi starfsemi tengist oftar en ekki fíkniefnaverslun og skjalafalsi," segir greiningardeildin. Líkur séu á að Íslendingar muni koma í auknum mæli að mansali og í einhverjum tilvikum í samstarfi við þá útlendinga sem senda stúlkur hingað til lands til að leggja stund á vændi. Bent er á að rannsaka þurfi vel mansal og smygl á fólki og er nú unnið að sérstakri aðgerðaráætlun gegn mansali á vegum félagsmálaráðuneytis.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira