Innlent

Biskup vísiterar Landspítalann

Frá guðsþjónustu á Landspítala sunnudag. Mynd frá LSH.
Frá guðsþjónustu á Landspítala sunnudag. Mynd frá LSH.

Biskup Íslands, herra Karl Sigurbjörnsson, vísiterar þessa daga Landspítalann. Með þessari heimsókn lýkur í vísitasíu biskups í Reykjavíkurprófastsdæmi eystra sem staðið hefur frá síðasta vetri. Þetta segir í tilkynningu frá Biskupsstofu.

„Vísitasían á Landspítala hófst í gær með guðsþjónustu á þriðju hæð Landspítalans og að lokinni henni átti biskup fund með prófasti, sjúkrahúsprestum og djákna á LSH ásamt stjórnendum," segir í tilkynningunni.

Þá segir að í dag heimsæki biskupinn Klepp, Grensás og Landakot. Þar muni hann ræða við starfsfólk og sjúklinga, bæði inn á deildum og með helgistundum og samverustundum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×