Erlent

Obama og Bush funda í dag

Atli Steinn Guðmundsson skrifar

Barack Obama, næsti forseti Bandaríkjanna, mun í dag funda með George Bush forseta í Hvíta húsinu og er heimsóknin talin eiga sér stað óvenjufljótt eftir kosningar.

Stjórnmálaskýrendur telja þetta helgast af þeim gríðarmiklu verkefnum sem bíða Obama eftir að hann sver eiðinn í janúar og að nú megi engan tíma missa að koma nýja forsetanum inn í starfið svo fljótt sem verða megi. Fastlega er gert ráð fyrir að efnahagsástandið í Bandaríkjunum verði efst á baugi á fundi Bush og arftaka hans.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×