Leitað vegna skemmdarverka á fallturni 1. júlí 2008 13:12
Lögregla leitar þriggja karlmanna um tvítugt sem sköpuðu stórhættu þegar þeir áttu við búnað fallturnsins í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Árvekni starfsmanns kom í veg fyrir slys. Frá þessu er greint í 24 stundum í dag. Þann 18. júní var brotist inn í skúr þar sem búnaður vegna fallturnsins er geymdur. Þar hafði rafmagnstafla verið skemmd og búið var að sprauta efni úr slökkvitæki ofan í olíutankinn sem fallturninn gengur fyrir. Til að byrja með hafði efnið ekki áhrif á gang turnsins en þegar líta tók á daginn tók athugull starfsmaður eftir því að ekki var allt með felldu.Næstu nótt á eftir gekk næturvörður fram á þrjá menn í kringum tvítugt sem voru að reyna að brjótast inn í sama skúr. Að öllum líkindum er um sömu skemmdarvarga að ræða því næturvörðurinn heyrði þá segja að búið væri að hreinsa olíutankinn. Mennirnir flúðu af vettvangi þegar þeir urðu varir við næturvörðinn. Tómas Óskar Guðjónsson, forstöðumaður Fjölskyldu- og húsdýragðarsins, segir að líf fólks hafi ekki verið í hættu.Tvo daga tók að laga tækið sem er komið í fullan gang á ný. Kostnaður vegna skemmdarverkanna er um ein milljón króna. Málið er í rannsókn hjá lögreglu en enginn hefur enn verið handtekinn vegna málsins. Næturvörðurinn auk nokkurra starfsmanna garðsins þekkja þó mennina vel í sjón og geta því gefið lögreglu greinargóða lýsingu á þeim.
Mest lesið Skothvellir við Hvíta húsið Erlent Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Innlent Fleiri fréttir Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Sjá meira