Harma aðför að „brottreknum“ Slökkviliðsstjóra SB skrifar 1. júlí 2008 13:50 Sigmundur Eyþórsson, er í leyfi sem slökkviliðsstjóri á Suðurnesjum.
Formaður félags slökkviliðsstjóra harmar þá aðför sem gerð var að Sigmundi Eyþórssyni, slökkviliðsstjóra á Suðurnesjum, eftir að hann hleypti Víkurfréttum inn á Tetra kerfi stöðvarinnar. "Við höfum verulegar áhyggjur af þessu og söknum Sigmundar úr starfi," segir Kristján Einarsson, formaður félags slökkviliðsstjóra. Sigmundur Eyþórsson, slökkviliðsstjóri Brunavarna Suðurnesja, var sendur í leyfi eftir að deilur um aðgang fjölmiðla að Tetra kerfi slökkviliðsins komu upp á yfirborðið. "Við skoðuðum þetta mál en það virðist ekkert óeðlilegt við aðgerðir Sigmundar. Hann fór inn í þetta nýja tetra umhverfi og er allt í einu orðinn stórhættulegur maður af því hann afhenti blaðamanni aðgang að tetra talstöð. Samt heyrir fjöldi manns samskipti slökkviliðsins í Tetra kerfinu á hverjum degi - fólk sem afgreiðir slökkviliðsmenn í bakaríum eða krakkar í starfskynningu." Sigmundur hleypti Víkurfréttum inn á Tetra kerfi slökkviliðsins á Suðurnesjum. Víkurfréttir höfðu keypt Tetra búnað frá hátækni. Vísir ræddi bæði við Hilmar Braga hjá Víkurfréttum og Sigmund. Í þeim samtölum kom fram að slökkviliðið hefði í gegnum tíðina átt gott samstarf við fjölmiðla. Oft hefðu myndir frá Víkurfréttum verið notaðar í rannsókn á brunum eða öðrum slysum. Til dæmis þá áttu Víkurfréttir einu myndirnar af léttabáti sem fór frá danska varðskipinu að Wilson Muuga. Myndir Víkurfrétta nýttust dönsku rannsóknarlögreglunni. Sigmundur vildi ekkert tjá sig um sitt mál. Varðandi deilurnar um Tetra kerfið segist Kristján undrast að það skyldi hafa verið notað gegn Sigmundi. DV fjallaði ítarlega um málið á sínum tíma: "Ég undrast skrif DV um þetta mál, að blaðið skildi ekki hafa stutt ákvörðun Slökkviliðsstjóra heldur æst málið upp," segir Kristján. En það er ekki bara deilur um Tetra kerfið sem olli Sigmundi erfiðleikum í starfi. Kristján segir langvarandi deilur og spennu hafa geysað innan Slökkviliðs Suðurnesjana. Vísir hefur fjallað um dómsmál sem ekkja slökkviliðsmanns höfðaði gegn Sigmundi. Slökkviliðsmaðurinn var með hjartagalla og lést við þrekæfingar. Sigmundur sætti gagnrýni fyrir að hafa ekki leyst hann frá störfum. Málið hefur ekki enn farið fyrir Hæstarétt. Kristján segir að þessi mál hefði verið hægt að leysa án þess að leysa Sigmund frá störfum. Hann telji að stjórnin hafi ekki staðið nægilegan vörð um slökkviliðsstjóran sinn. Hann sé einn menntaðasti slökkviliðsstjóri landsins og hafi unnið gott starf á Suðurnesjum. Ef deilurnar vegna Tetra kerfisins sé ástæða þess að hann sé settur af þá þurfi allir slökkviliðsstjórar landsins að íhuga stöðu sínu. "Nú eru allir að Tetra væðast og við þurfum að fá skýr svör við því hvað má og hvað má ekki. Hvaða persónuupplýsingar eru það sem fara í gegnum þetta kerfi sem enginn má heyra. Menn gátu skannað gömlu talstöðvarnar sem við unnum með en þetta Tetra dæmi er orðið töluvert leyndarmál. Við munum biðja Samband íslenskra sveitarfélaga og Neyðarlínuna að kanna þetta mál fyrir og gefa okkur skýr lögfræðileg svör og vinnureglur."
Mest lesið Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Innlent Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Innlent „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Innlent Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Innlent Bandaríski sjóherinn vildi taka skip á leigu og gera út til Grænlands Erlent Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Innlent Fleiri fréttir Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Sjá meira