„Þessir vextir eru allt lifandi að drepa“ Atli Steinn Guðmundsson skrifar 28. september 2008 13:39
Staða krónunnar og atburðarásin hjá lögreglu- og tollstjóraembættinu á Suðurnesjum var meðal þess sem bar á góma hjá Agli Helgasyni í Silfrinu í dag. Meðal gesta Egils voru þingmennirnir Bjarni Benediktsson og Valgerður Sverrisdóttir, Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda, og Hafliði Jósteinsson tómstundafulltrúi. Þegar talið barst að stöðu krónunnar sagði Gísli Tryggvason að aðgerðir vantaði fyrir fjölskyldur og neytendur í landinu. „Það þarf að bjarga krónunni vegna fólksins," sagði Gísli. „Á meðan Bandaríkjamenn standa fyrir björgunaraðgerðum í efnahagslífinu eru hér bara fundir og umræður. Gengislánin stórhækka, þetta gengur ekki lengur, fólk verður að sjá einhverjar lausnir." Útilokað að átta sig á stefnu stjórnarinnar Hafliði Jósteinsson sagði það vera útilokað fyrir fólk að átta sig á því hver væri raunveruleg stefna ríkisstjórnarinnar. „Þessir vextir eru allt lifandi að drepa. Það þýðir ekkert að fá hvern sérfræðinginn á fætur öðrum til að segja þetta og segja hitt, það þarf að gera eitthvað," sagði Hafliði. Hann sagði Evrópusambandsumræðuna bráðnauðsynlega og að skoða yrði alla þætti þess máls. Fólk yrði að hafa raunhæfa stefnu í ESB-málum ef það vildi láta taka sig alvarlega í stjórnmálum. Bjarni Benediktsson sagði að nú kæmi það ekki til greina lengur að velja eingöngu það dýrasta og besta heldur yrði að sýna aðhaldssemi, hvort tveggja hjá ríki og sveitarfélögum, og nefndi hann Sundabraut sérstaklega sem dæmi. Rætt var um mál Jóhanns Benediktssonar, lögreglu- og tollstjóra á Suðurnesjum, sem láta mun af embætti í vikunni. Valgerður Sverrisdóttir sagði málið óskaplega ljótt og leiðinlegt. „Þetta er hæfur og öflugur embættismaður sem um er að ræða. Að auglýsa stöðu án þess að maður hafi brotið af sér er mjög óvenjulegt," sagði Valgerður. Bjarni Benediktsson sagði atburðarásina óvænta en þó væri ekki hægt að líta fram hjá því að hugmyndir Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra ættu sér fulla stoð í stjórnkerfinu, meðal annars hjá Ríkisendurskoðun. „Nú getur Sjálfstæðisflokkurinn sýnt helsta styrkleika sinn sem er að standa saman um stefnuna," sagði Bjarni. „Sjálfstæðisflokkurinn á eftir að fá rækilega á baukinn vegna þessa máls," sagði Hafliði Jósteinsson. „Fólkið í landinu sér þarna á eftir góðum manni."
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Leggjast gegn því að útivistartími tíu til tólf ára verði lengdur að vetri Innlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Erlent Fleiri fréttir Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Leggjast gegn því að útivistartími 10 til tólf ára verði lengdur að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Sjá meira