Ekki sanngjarnt að kalla okkur óreiðumenn 8. október 2008 20:19 Sigurjón Þ Árnason
Sigurjón Þ. Árnason bankastjóri Landsbankans segir ekki sanngjarnt að kalla forsvarsmenn bankanna óreiðumenn líkt og Davíð Oddsson gerði í Kastljósi gærkvöldsins. Sigurjón var gestur Kastljóss Sjónvarpsins í kvöld. „Það sem við vorum að gera var að byggja upp stórt og öflugt bankakerfi sem skilaði miklu. Siðan lendum við í því fárviðri sem verið hefur á fjármálamörkuðum undanfarið. Öll frægustu og bestu nöfnin falla og við lendum í miðjum hvirfilbylnum með veikt bakland sem ekki hefur fylgt okkur eftir, og við náum bara ekki að standast það," sagði Sigurjón. Hann vildi meina að það væri skilgreiningaratriði hvort bankarnir hefðu farið of geyst eða Ríkið hefði farið of hægt. Hann sagði einnig að aðilar sem menn hefðu talið fyrirfram eðlilegt að myndu hjálpa okkur hefðu ekki komið til bjargar og nefndi hann sérstaklega Bandaríkin í því sambandi. „Því er svo komið að Seðlabankinn er farinn að vinna með Rússum, sem menn hefðu ekki átt fyrirfram von á, en staðan er svona í dag." Þegar Sigurjón var beðinn um að rekja hvað það var sem felldi Landsbankann sagði hann að 15.september hefði verið örlagaríkur dagur þegar Lehman fjárfestingarbankinn í Bandaríkjunum fór á hausinn. „Það trúði því enginn að hann myndi vera látinn falla og þegar svo stór banki fellur myndast mikil óró á markaði og vantrú sem kom Glitni í erfiða stöðu." Hann segir það hafa orðið til þess að Glitnir hefði leitað á náðir Seðlabankans sem reyndi að hjálpa til. Þá hafi komið í ljós hversu bakland íslensku bankanna er veikt og þá hefðu vandræði hinna bankanna margfaldast. „Á mjög skömmum tíma byrjuðu lánalínur að lokast og lausafjárstaðan minnkaði. Á föstudaginn í síðustu viku töldum við að við ættum rétt á láni frá Evrópska Seðlabankanum." Í lok markaða á föstudaginn kom síðan í ljós að svo væri ekki og þá breyttust allar forsendur og var unnið að því alla helgina að leysa vandann. Bankinn hafi síðan séð fram á það að geta ekki greitt lán á þriðjudeginum og því hefði verið leitað á náðir stjórnvalda um að grípa inn í og vernda íslenska sparifjáreigendur og bjarga því sem bjargað var. Sigurjón sagði þó mikilvægt að átta sig á því að Ísland væri í sterkri stöðu þó bankakerfið væri ekki eins sterkt og áður. „Við erum með orkuauðlindir sem við þurfum að nýta og koma í verð. Mér finnst hafa verið tregða á Íslandi við að nýta þessar auðlindir, en nú er tækifærið."
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira