Innlent

Kynlífshjálpartækjaþjófur gómaður

Þjófar voru á ferðinni hér og þar um borgina í gær ogmeðal annars var maður gripinn þegar hann hugðist stela kynlífshjálpartæki.

Nokkur innbrot voru tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær og nótt, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Tölvu var stolið úr húsnæði fyrirtækis í Kópavogi og úr íbúð í Hlíðunum voru teknir bæði símar og tölvubúnaður. Þá var brotist inn í bíl í miðborginni en engu stolið og í Grafarvogi hurfu munir úr tveimur bílum. Karl um þrítugt var handtekinn vegna rannsóknar málanna í Grafarvogi en í bíl hans fannst það sem talið er vera þýfi.

Nokkuð var um hnupl í borginni í gær því tvær konur voru staðnar að hnupli í matvöruverslunum. Sú eldri, sem er á sextugsaldri, var tekin á Seltjarnarnesi og hin í vesturbæ Reykjavíkur en sú er á þrítugsaldri. Þá var tvítug stúlka var gripin í Kringlunni þegar hún hugðist yfirgefa verslun þar án þess að greiða fyrir fatnað sem hún hafði tekið og loks var karl á sextugsaldri staðinn að verki í ónefndri verslun á höfuðborgarsvæðinu en maðurinn ætlaði að stela kynlífshjálpartæki eins og áður sagði.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×