Kvartar yfir GSM-sambandi í Innri-Njarðvík - Síminn lofar úrbótum Atli Steinn Guðmundsson skrifar 1. júlí 2008 10:36 Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Skipta, móðurfélags Símans. MYND/Stefán „
Við erum með á áætlun þessa árs að styrkja farsímasambandið í Innri-Njarðvík og höfum verið að leita eftir aðstöðu á svæðinu til að hýsa búnaðinn," segir Linda Björk Waage, forstöðumaður á samskiptasviði Skipta, móðurfélags Símans, en Vísir leitaði til hennar eftir að óánægður viðskiptavinur Símans lét í sér heyra í gær. Viðskiptavinurinn, kona sem býr í Innri-Njarðvík í Reykjanesbæ, sagði sínar farir ekki sléttar og kvað GSM-samband á og við heimili sitt með eindæmum slitrótt. Taldi hún það skjóta skökku við að Síminn færði fréttir af GSM-sambandi á Kili og Hvannadalshnjúk á meðan þéttbýlissvæði á Suðurnesjum yrðu út undan. Sagðist hún enn fremur oft ekkert GSM-samband hafa nema á litlum bletti í bílskúrnum hjá sér, annars gæfi síminn þau skilaboð að einungis væri mögulegt að hringja neyðarsímtöl, það er að segja í Neyðarlínuna. Linda Björk á samskiptasviðinu segir það geta tekið tíma að fá aðstöðu til að hýsa búnaðinn í nýrri íbúðahverfum en Síminn hafi hins vegar unnið að því að stækka og þétta þjónustusvæði sitt jafnt í dreifbýli sem þéttbýli ásamt því að ná betur til miðanna úti fyrir ströndum landsins. „Á sama tíma er að sjálfsögðu verið að skoða með hvaða hætti við getum bætt þjónustuna enn frekar þar sem hún er þegar til staðar og eins og kom fram áðan er verið að skoða Innri-Njarðvík í því sambandi. Allt eru þetta verkefni sem miða að því að stórefla þjónustusvæði Símans hvar sem fólk er statt á landinu," segir Linda Björk að lokum.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira