Innlent

Nefbrotinn á Selfossi

Maður var nefbrotinn þegar ráðist var á hann fyrir utan skemmtistaðinn 800 bar á Selfossi aðfaranótt sunnudags. Árásarmaðurinn var að sögn lögreglu mjög ölvaður og æstur. Hann var handtekinn og færður í fangageymslu. Hann var yfirheyrður þegar runnið var af honum en hann bar þá við minnisleysi og kannaðist ekkert við málið. Málið er í rannsókn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×