Þorskverð í hæstu hæðum 2. október 2008 18:53
Þorskverð á fiskmörkuðum hérlendis síðustu daga hefur aldrei verið hærra og hefur óslægður þorskur verið að seljast á yfir 350 krónur kílóið. Stórhækkaður lána- og olíukostnaður skyggir hins vegar á gleði útgerðarmanna.Smábátarnir streymdu inn til Grindavíkur í dag með afla sem umbreytist í geysiverðmætan gjaldeyri sem íslenskt efnahagslíf hrópar á. Verðið fyrir óslægaðan þorsk hefur aldrei verið hærra, samkvæmt upplýsingum frá Fiskmarkaði Íslands, og meðalverð síðustu daga verið frá 320 og upp í 370 krónur krónur fyrir kílóið. Aðrar fisktegundir hafa einnig verið að gefa vel af sér. Verðið í erlendri mynt hefur reyndar sigið en gengislækkun krónu gerir meira en að vega það upp.Bátarnir voru að landa um og yfir tveimur tonnum hver og aflaverðmætið 400 til 500 þúsund krónur, sem telst bærilegt fyrir tvo menn eftir daginn. Sjómennirnir í Grindavík voru þó ekkert að hoppa hæð sína í loft upp. Skipverjarnir á netabátnum Mörtu Ágústsdóttur GK voru að undirbúa brottför. Útgerðarmaðurinn var hreint ekki kátur. Erlendu lánin væru að fara með allt til anskotans. Þetta væru bara hamfarir. Útgerðarmönnum finnst krónan vera orðin allt of veik. Magnús Kristinsson, útgerðarmaður í Vestmannaeyjum, segir að menn hafi fjárfest í veiðiheimildum og skipum og tekið erlend lán og nú væru lánin komin upp fyrir allt velsæmi. Gengisvísitala krónunnar yrði að nást niður. Hann færir ríkistjórninni það ráð gegn kreppunni að auka nú þegar þorskkvótann.
Mest lesið Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Innlent Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Innlent Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Innlent Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Erlent Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Innlent Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Innlent Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Innlent Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Innlent Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Innlent Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Innlent Fleiri fréttir Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Einn þeirra handteknu sautján ára Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Efnahags- og Evrópumál, hvalveiðar og laxeldi á landi á Sprengisandi Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Sjá meira